Vibe Coding — byrjendanámskeið í AI-aðstoðaðri forritun
Gervigreindarmynd
Almennt verð
39.900 kr
RSÍ endurmenntun
14.500 kr
Skrá mig

Á þessu námskeiði lærir þú að byggja eigið smáforrit (vefapp) með aðstoð gervigreindar – án þess að hafa áður skrifað eina línu af kóða. Þú lærir að lýsa hugmynd í venjulegu máli, láta gervigreind byggja fyrstu útgáfu, prófa hana, bæta hana í skrefum og þróa verkefnið áfram frá fyrstu hugmynd að virku smáforriti. 

Unnið er með Codex sem aðalverkfæri ásamt einfaldri verkefnamöppu þar sem öll gögn verkefnisins eru vistuð. Einnig er farið yfir grunnatriði GitHub-notkunar til að varðveita verkefnið og auðvelda áframhaldandi þróun eftir námskeiðið.

Þótt unnið sé með Codex byggir námskeiðið á vinnuaðferðum sem auðvelt er að yfirfæra á önnur sambærileg AI-þróunarverkfæri, svo sem Claude Code, Gemini CLI , Cursor og fleiri.

Hentar

Námskeiðið hentar öllum sem vilja nýta gervigreind til að breyta hugmynd í virkt smáforrit – óháð fyrri reynslu af forritun. Hvort sem verkefnið tengist starfi, áhugamáli eða persónulegri þörf, færð þú þekkingu og verkfæri til að þróa eigin hugmynd áfram.

Þú lærir
  • Hvernig gervigreind (LLM) vinnur og hverjir styrkleikar hennar og takmarkanir eru
  • Að byggja fyrstu útgáfu af smáforriti með gervigreind
  • Að bæta og þróa forritið með markvissum leiðbeiningum (promptum)
  • Að nota gervigreind við villuleit
  • Að nota GitHub til að vista og halda utan um verkefnið
Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í tveimur fjögurra klukkustunda lotum. Fyrst vinna allir með vel skilgreint verkefni sem byggt er upp skref fyrir skref. Að því loknu geta þátttakendur aðlagað lausnina að eigin hugmynd. Þannig öðlast allir raunhæfa lokaafurð sem hægt er að þróa áfram eftir námskeiðið.

Forkröfur
  • Fartölva (Rafmennt getur útvegað fartölvu ef óskað er)
  • Virkur Codex-aðgangur sem hefur verið prófaður fyrir námskeið
  • GitHub-aðgangur
  • Almenn tölvufærni
  • Grunnþekking í ensku til að lesa leiðbeiningar og skilaboð frá gervigreind
Lokaafurð

Þú ferð heim með virkt smáforrit sem þú hefur sjálf/ur byggt, prófað og þróað með aðstoð gervigreindar – og veist hvernig þú getur haldið áfram að þróa það eftir námskeiðið.

Leiðbeinandi

Stefán Gunnarsson, BSc í tölvunarfræði, sér um námskeiðið. Hann hefur yfir áratuga reynslu af hugbúnaðarþróun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækis. Á síðustu árum hefur hann sérhæft sig í innleiðingu og hagnýtingu gervigreindar í hugbúnaðarþróun og skrifar reglulega um þau málefni. Á námskeiðinu byggir hann á hagnýtri reynslu af þróun hugbúnaðar með gervigreind og Hugmyndaforritun (Vibe Coding).

  14. – 21. október 2026 - dagnámskeið

  11. – 28. nóvember 2026 - kvöldnámskeið

  8 klst. – 2 skipti

  Rafmennt, Stórhöfða 27

Dagskrá

Tvær lotur, 4 klukkustundir hvor — veldu dag- eða kvöldnámskeið.

Dagnámskeið

Miðvikudagurinn 14. október 08:30 – 12:30
Miðvikudagurinn 21. október 08:30 – 12:30

Kvöldnámskeið

Miðvikudagurinn 11. nóvember 17:00 – 21:00
Miðvikudagurinn 18. nóvember 17:00 – 21:00

Hvað er Hugmyndaforritun?

Hingað til hefur forritun yfirleitt krafist þess að læra tungumál tölvunnar. Hugmyndaforritun (e. Vibe Coding) er ný nálgun í hugbúnaðarþróun þar sem þú lýsir hugmynd í venjulegu máli og gervigreind sér um stóran hluta forritunarvinnunnar. Í stað þess að byrja á því að læra forritunarmál byrjar þú á hugmyndinni sjálfri og þróar hana áfram í samtali við gervigreind. Þessi nálgun gerir byrjendum kleift að byggja eigin forrit án fyrri reynslu, en nýtist jafnframt reyndum forriturum til að hraða þróun, prófun og endurbótum.


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð 39.900 kr
RSÍ endurmenntun 14.500 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Flokkar: Endurmenntun
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Hugmyndaforritun með gervigreind 14. okt. 2026 - 21. okt. 2026 Rafmennt ehf. 09:00 - 13:00 Stórhöfði 27 14.500 kr. Skráning
Hugmyndaforritun með gervigreind 11. nóv. 2026 - 18. nóv. 2026 Rafmennt ehf. 17:00 - 21:00 Stórhöfði 27 14.500 kr. Skráning