Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við hljóð-, ljós- og myndkerfi (AV) og vilja efla skilning sinn á IP-netum og þeim tæknilegum þáttum sem þeim tengjast. Fjallað verður um grunnatriði netkerfa og farið yfir helstu tæknilausnir sem notaðar eru í AV-umhverfi, þar á meðal Dante, stýringar, sACN og aðrar tengdar þjónustur. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist betri skilning á uppbyggingu og virkni IP-netkerfa, geti greint algeng vandamál og unnið markvisst að bilanagreiningu.
Kennslan byggir meðal annars á bókinni Show Networks and Control Systems, sem leiðir nemendur í gegnum helstu þætti netkerfa í hljóð- og ljósabransanum.
Fyrri hluti dagsins er tileinkaður fræðilegum grunni. Þar verður farið yfir grundvallaratriði IP-netkerfa, CAT-kapla, ljósleiðara, tengi og helstu staðla, auk þess sem fjallað verður um uppbyggingu LAN- og VLAN-neta.
Seinni hluti dagsins er verklegur. Þar vinna nemendur með raunhæf netkerfisvandamál sem sett verða upp sérstaklega fyrir námskeiðið. Nemendur þurfa að greina bilanir í kerfunum og leita lausna með skipulegri nálgun.
Í lok námskeiðsins eiga nemendur að hafa öðlast þjálfun í að takast á við algengustu vandamál sem koma upp í AV-netum og geta fylgt skýrum skrefum til að einangra og leysa slík vandamál.
Skilningur á grunnnetkerfum
Nemandi getur metið hvort netkerfi sé rétt upp sett, skilið hvernig netskiptar og beinar eru tengdir og framkvæmt grunnbilanagreiningu á netbúnaði.
Hæfni til IP-bilanagreiningar
Nemandi getur metið hvort kerfi sé rétt uppsett samkvæmt helstu stöðlum og þjónustum, svo sem DHCP, PTP og öðrum sambærilegum lausnum.
Færni í bilanagreiningu á þjónustum
Nemandi getur greint og leyst vandamál sem tengjast þjónustum sem algengar eru í AV-umhverfi, þar á meðal Dante, AES67 og sACN.
Samskipti við netþjónustuaðila
Nemandi hefur grunnfærni til að skipuleggja netkerfi og getur átt upplýst samtal við netþjónustuaðila um uppsetningu, breytingar eða bilanir í netkerfi.

Nemendur eru beðnir um að koma með fartölvu á námskeiðið. Einnig eru þeir hvattir til að taka með sér annan IP-búnað ef þeir vilja nýta hann í verklegum æfingum.
Í lok námskeiðsins fer fram lokapróf sem ætlað er sem endurgjöf á þann skilning og þá færni sem nemendur hafa öðlast. Að því loknu fá þátttakendur staðfestingu á þátttöku og námskeiðslokum.
Kennari námskeiðsins er Þorleifur Gíslason. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnkerfum og netkerfum fyrir hljóð- og ljósbúnað, auk stýringakerfa. Hann hefur meðal annars lokið Avixa (ANP) og fleiri sérhæfðum námskeiðum sem tengjast netkerfum í AV-bransanum.
Áfangaheiti: ALMN07MERKNET
Fullt verð: 33.250 kr
RSÍ endurmenntun: 11.640 kr
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.
Sé þátttakandi afskráður af námskeiði innan 4 vikna fyrir upphaf námskeiðs áskilur Rafmennt sér rétt til rukkunar á 50% af fullu námskeiðsgjaldi.
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Netkerfi fyrir viðburði | 05. maí 2026 | 09:00 - 16:00 | Stórhöfði 27 | 11.640 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050