Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.

Áfangaheiti: ÖRYG02HEIT

Heit vinna fer fram þar sem unnið er með opinn eld eða verkfæri sem gefa frá sér neista. Þar má helst nefna logsuðu, rafsuðu, slípirokka, bræðslu málma o.fl. Fjallað verður um áhættumat við „heita vinnu“. Hvenær ætti að gefa út vinnuleyfi og hver gefur það út. Að lokum er fjallað um brunavarnir og slökkvitæki.

Dagskrá námskeiðsins:

  • Kynning
  • Hvað er heit vinna?
  • Lög og reglur
  • Vinnuverndarstarf
  • Áhættumat – vinnuleyfi
  • Skráning slysa og atvika
  • Viðhaldsvinna – nýbyggingar
  • Efni og efnahættur
  • Efni sem losna úr læðingi, bruni á súrefni
  • Vinna í hæð
  • Vinna í lokuðu rými
  • Propangas og gashylki
  • Hitun á stórum fleti (Þök)
  • Eldhætta, suðuvinna og slípivinna
  • Vinnuleyfi
  • Slökkvitæki og eldvarnir
  • Fræg slys vegna heitrar vinnu

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 22.700 kr

RSÍ endurmenntunarverð: 7.945 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.


Flokkar: Almenn námskeið