Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
Áfangaheiti: UPTÆ02Gagnal
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái góðan skilning á því hvað gagnalæsi er og hvers vegna gagnalæsi og gagnagreiningar eru forsenda góðra ákvarðana. Við undirbúning ákvarðanatöku er gott að geta lesið í aðstæður og það er mikilvægt að geta lesið gögnin sem styrkja ákvörðunina.
Gögn ein og sér eru ekki til mikils. Það er ekki fyrr en við höfum breytt þeim í upplýsingar sem við getum notað þau til að taka betri ákvarðanir. Það er kjarni gagnalæsis, að kunna að raða saman ólíkum breytum til að fá vísbendingar og röksemdir sem styðja, styrkja eða hrekja forsendur fyrir ákvörðunum okkar.
Á námskeiðinu er farið yfir það hvernig hraði þróunar hefur verið og hverju megi eiga von á. Farið er yfir breytingar á ákvarðanatöku og hvernig gagnalæsi og gagnagreiningar eru forsendur fyrir góðri ákvarðanatöku og samkeppnisyfirburðum.
Námskeiðið er fyrir alla sem vilja fara yfir grunnatriðin í gagnalæsi. Fyrir þá sem vilja fara yfir góðar skilgreiningar og fá góðan grunnskilning á gagnalæsi og gagnagreiningu.
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma og hraða sem hentar þeim.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.
Sveigjanlegar dagsetningar
Á eigin hraða
Kennslukerfi Opna háskólans í HR
Dr. Páll Ríkharðsson
Framkvæmdastjóri Planet Youth
Páll lauk doktorsprófi í viðskiptafræði árið 1997 frá Háskólanum í Árósum og starfaði sem manager og senior manager hjá PricewaterhouseCoopers í Kaupmannahöfn á árunum 1994 til 2000. Þá tók hann við stöðu dósents í reikningshaldi og upplýsingatækni við Háskólann í Árósum þangað til 2007.
Frá 2007 til 2013 starfaði Páll sem ráðgjafi hjá fyrirtækjunum SAS Institute, PwC og Herbert Nathan & Co í Kaupmannahöfn. Frá 2012 tók Páll við fullri stöðu dósents við Háskóla Reykjavíkur og varð prófessor og deildarforseti 2016, en gegnir nú stöðu framkvæmdastjóra Planet Youth.
Páll hefur birt fjölda bóka og greina um meðal annars upplýsingastjórnun, viðskiptagreind, stjórnunarreikningsskil og innra eftirlit.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
| Fullt verð | 21.200 kr |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 7.500 kr |
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Gagnalæsi | 01. okt. 2026 - 19. des. 2026 | Alltaf opið | Á netinu | 7.500 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050