Námskeiðslýsing

Dante Level 1 er inngangsnámskeið í heimi stafrænnar hljóðtækni og hljóðneta (Audio over IP). Á námskeiðinu kynnast nemendur grunnatriðum þess hvernig hljóðmerki eru flutt yfir staðlað tölvunet í stað hefðbundinna hljóðsnúra. Farið er yfir uppsetningu á einföldum kerfum, grunnstillingu netbúnaðar og notkun Dante Controller hugbúnaðarins til að stýra hljóðleiðum. Námskeiðið leggur grunninn að nútíma vinnubrögðum í hljóðtækni þar sem sveigjanleiki og stafræn lausn eru í fyrirrúmi. Það verður aðeins farið yfir level 2 þáttinn líka þar sem talað verður um klukkur og hvernig þær vinna í netkerfum fyrir hljóð.

Þekkingarviðmið
  • Grunnhugtökum stafræns hljóðs (Sample rate, Bit depth, Latency).
  • Mismuninum á hliðrænum tengingum og stafrænum hljóðnetum.
  • Grunnatriðum í tölvunetfræði (IP-tölur, hlutverki netskipta og netkapla).
  • Hvernig Dante tæki „uppgötva“ hvert annað á neti (Device Discovery).
  • Fræðilegum grunni að baki flutningi hljóðs í „pökkum“ yfir Ethernet.
Leikniviðmið
  • Tengt saman Dante-hæf tæki með viðeigandi netbúnaði.
  • Notað Dante Controller til að:
    • Stofna og eyða hljóðtengingum (Subscriptions)
    • Breyta heitum á tækjum og hljóðrásum.
    • Breyta tæknilegum stillingum s.s. sýnatökutíðni og töf (latency).
  • Greint og leyst einfaldar villur í hljóðnetum (t.d. ef tæki eru ekki á sömu tíðni).
  • Notað Dante Virtual Soundcard eða Via til að tengja tölvu við hljóðnetið.

Upplýsingar

Þorleifur Gísason, leiðbeinandi á námskeiðinu er með hæðsta stig vottunar frá Audinate (Level 3) og hefur sérhæft sig í samþættingu flókinna tæknikerfa þar sem hljóð- og myndmiðlun mætir heimi upplýsingatækninnar.

Námsmat

Námskeiðinu lýkur með formlegu fjölvalsprófi á vefsíðu Audinate sem er tekið á ensku. Nemendur þurfa að standast prófið með lágmarkseinkunn (vanalega 80%) til að hljóta opinbera Dante Level 1 vottun.

 


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 31.200.- kr

RSÍ Endurmenntun: 10.920.- kr

Skrái þátttakandi sig af námskeiði með minna en 2 vikna fyrirvara áskilur Rafmennt sér rétt til innheimtu 50% námskeiðsgjalds.

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni



Flokkar: Tæknifólk
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Dante Level 1 08. sep. 2026 Þorleifur Gíslason 09:00 - 16:00 Stórhöfði 27 10.920 kr. Skráning