Námskeið í samstarfi við Iðuna - Fræðslusetur
Áfangaheiti: VIÐ48Eigna_Viðh
Námskeiðið er ætlað stjórnendum, verkfræðingum, verkstjórum og sérfræðingum sem bera ábyrgð á viðhaldi, eignastýringu og rekstraröryggi – í fyrirtækjum, opinberum stofnunum og þjónustueiningum. Námskeiðið hentar þeim sem eru að hefja störf á vettvangi eigna- og viðhaldsstjórnunar og eins og ekki síður þeim sem hafa öðlast reynslu á þessum vettvangi og vilja bæta enn við og sækja enn meiri þekkingu á þessu sviði.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við EVS - Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Íslands og Idhammar. Það veitir djúpa innsýn í viðhaldsstjórnun með áherslu á evrópska staðla (EN 13306 & EN 17007), bilanagreiningu, eignastýringu og stafrænar lausnir. Kennt er á ensku og námskeiðið samanstendur af þremur hlutum - tveimur staðlotum og einni fjarlotu - með blöndu af fyrirlestrum, umræðum og verkefnum. Hluti af námskeiðsgögnum er íslensk þýðing á völdum stöðlum (ISO 55k, EN13306 og EN 17007) sem eru mikilvægir sem slíkir og einnig til að brúa á milli enskunnar og íslenskunnar. Innifalið í námskeiðinu er próf sem tekið er í lok námskeiðsins og veitir evrópskt þekkingarvottorð í viðhaldsstjórnun, EFNMS PASS. Daginn eftir að námskeiðinu lýkur geta þátttakendur, að uppfylltum vissum skilyrðum, einnig tekið próf sem veitir evrópsk færniskírteini í viðhaldsstjórnun, EFNMS CERTIFICATION, það próf er ekki innifalið í verði námskeiðsins.
Að þátttakendur öðlist yfirgripsmikla þekkingu og hagnýt verkfæri í nútíma viðhaldsstjórnun og eignastýringu, og verði færir um að bæta árangur viðhaldsstarfa með stefnumótandi hætti.
Námskeiðið er kennt á ensku af sérfræðingum frá Idhammar. Próftaka fyrir EFNMS CERTIFICATE er ekki innifalin í námskeiðsgjaldi og verður auglýst sérstaklega.

Athugið að suma daga er kennt annarsstaðar, sjá dagsetningar fyrir neðan.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
Fullt verð: 590.000 kr
SART: 490.000 kr
RSÍ endurmenntun: 340.00 kr
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Eigna- og viðhaldsstjórnun | 01. sep. 2026 - 07. okt. 2026 | Vatnagarðar 20 og Zoom | 340.000 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050