Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi grunnþekkingu á klippingu og eftirvinnslu myndefnis þar sem hér er ekki um að ræða grunnnámskeið í efninu.
Nemendur mæta með eigin fartölvur með Davinci Resolve uppsettu á.
Á námskeiðinu verður notast við grading panela fyrir Resolve en takmarkað magn af þeim er í boði til láns. Því viljum við hvetja nemendur sem eiga slíkan búnað að mæta með hann til eigin nota til að gefa fleiri umsækjendum tækifæri til að fá sæti á námskeiðinu. Biðjum við því vinsamlegast um að þeir nemendur sem ætla sér að mæta með eigin panel tilkynni það til taekni@rafmennt.is.
Hafi nemendur áhuga á að fjárfesta í slíkum búnaði býðst þeim Blackmagic Design DaVinci Micro Color Panel frá Ofar á sérkjörum. Upplýsingar um kjörin fást í gegnum tölvupóstfangið hér að ofan eftir að umsókn hefur verið send inn.
Trickshot er íslenskt eftirvinnslufyrirtæki sem sérhæfir sig í litgreiningu, klippingu, hljóðvinnslu, sjónbrellum (VFX) og motion graphics fyrir kvikmyndir, sjónvarpsefni, auglýsingar, heimildarmyndir og tónlistarmyndbönd. Fyrirtækið vinnur náið með framleiðslufyrirtækjum og auglýsingastofum að bæði innlendum og alþjóðlegum verkefnum og leggur áherslu á tæknileg gæði, skapandi nálgun og traust samstarf í gegnum allt eftirvinnsluferlið.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
Fullt verð: 75.500.- kr
SART verð: 60.400.- kr
RSÍ Endurmenntun: 30.425.- kr
Skrái þátttakandi sig af námskeiði með minna en 2 vikna fyrirvara áskilur Rafmennt sér rétt til innheimtu 50% námskeiðsgjalds.
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Rafmennt x Trickshot - Davinci Resolve - Klipp til afhendingar | 22. sep. 2026 - 29. sep. 2026 | Rafmennt ehf. | 08:30 - 16:00 | 30.425 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050