Áfangaheiti: UPTÆ08Claude AI
Claude á Íslandi
Gervigreindarmynd
Almennt verð
59.900 kr
RSÍ endurmenntun
19.990 kr
Skrá mig

Viltu nýta gervigreind sem var þróuð fyrir fyrirtækjarekstur til að spara tíma, bæta gæði og auka framleiðni í daglegum verkefnum?

Claude á Íslandi er fyrsta íslenska námskeiðsröðin um Claude frá Anthropic, eitt öflugasta gervigreindarmódel heims.

Dagskrá

Tveir dagar, 3,5 klukkustundir hvorn dag: sami trausti grunnur og áður en með tvöföldum tíma svo þú náir að vinna verkefnin sjálf/ur undir leiðsögn.

Dagur 1 – 09:00 – 12:30
  • Anthropic, Claude og öryggi: hvað gerir módelið frábært, og líkönin (Haiku, Sonnet, Opus)
  • Claude.ai grunnur: viðmót, áskriftir, Memory, Research og Extended Thinking
  • Prompt engineering og context management í verki
  • Módel-samanburður í verki: sama verkefni á Haiku, Sonnet og Opus, og hvenær á að nota hvert
  • Projects: sérsniðnar leiðbeiningar og þekkingargrunnur, hver setur upp sitt
  • Office-samþættingar og Claude Design: Excel, PowerPoint, Word og hönnun á eigin skjölum
Dagur 2 – 09:00 – 12:30
  • Claude í Chrome og MCP-samtengingar á þínum eigin gögnum
  • Cowork og Claude Desktop: Cowork vs Claude.ai, Computer Use og CLAUDE.md
  • Skills í verki: hvað þau eru, 5 hlutarnir, og hver smíðar sitt eigið skill
  • Plugins og Scheduled Tasks: sérsníða plugins og setja upp sjálfvirk verk
  • Live Artifacts: lifandi mælaborð og smáforrit búin til beint í samtali
  • Innleiðing: 30-daga plan og AI-stefna, og samantekt með Q&A

Þú mætir með fartölvu og færð „hands-on" æfingar skref fyrir skref, með aðstoð allan tímann. Markmiðið er skýrt: að þú farir af námskeiðinu með verkfæri og vinnulag sem nýtast strax í starfi.

Yfir 170 fagaðilar hafa þegar setið Claude-námskeið hjá GoFlowtics.

Kennari

Ari Auðunn Jónsson er með vottanir frá Anthropic og Google og hefur unnið með Claude síðan 2024.

Í daglegum störfum hjálpar hann litlum og meðalstórum fyrirtækjum að taka fyrstu skrefin í gervigreind — allt frá stefnumótun og innleiðingu yfir í sérsniðnar AI-lausnir, SaaS-kerfi og sjálfvirka agenta sem spara tíma og auka framleiðni.

Sú reynsla er grunnurinn að námskeiðinu: hagnýt þekking sem nýtist strax í raunverulegum verkefnum.

Hvað lærir þú og gerir í verki?
  • Office-samþættingar — Claude í Excel, PowerPoint og Word á þínum eigin skjölum
  • Claude Design — kynningar, myndefni og skjöl í fagmannlegu útliti
  • Þín eigin Skills — þú smíðar sérsniðið „skill" frá grunni sem lætur Claude vinna eftir þínum ferlum
  • Sérsniðin Plugins — Claude aðlagað að þínum verkfærum og vinnuflæði
  • Live Artifacts — lifandi mælaborð og smáforrit búin til beint í samtali
  • Samanburður á módelum — Haiku, Sonnet og Opus á sömu verkefnum, og hvenær á að nota hvert
  • Samtengingar við þín gögn — MCP, Cowork og Claude í Chrome á þínum eigin skjölum
  • Prompt engineering og context management

GoFlowtics hefur þjálfað yfir 170 fagaðila og unnið með fjölda fyrirtækja við að taka fyrstu skrefin í gervigreind. Sú reynsla er grunnurinn að námskeiðinu: hagnýt þekking sem virkar í raunverulegum rekstri.

Námskeiðið er á íslensku.

10. – 11. september 2026

  7 klst. – 2 skipti

  Rafmennt, Stórhöfða 27

Dagskrá

Tveggja daga námskeið, 3,5 klukkustundir hvorn dag.

 Fimmtudagurinn 10. september 09:00 – 12:30
 Föstudagurinn 11. september 09:00 – 12:30

Umsagnir

„Ari kom með mikla orku inn í námskeiðið og fór yfir helstu þætti í Claude. Hann er mjög jákvæður og með þægilega nærveru." — EDICO
Sjá fleiri umsagnir
„Virkilega fagmannlegt og gott námskeið, gott utanumhald og góður hraði, við fórum hópur frá vinnunni og hefur þetta á eftir að nýtast okkur vel í starfi og hefur strax auðveldað okkur mörg verkefni og erum við spennt að halda áfram að vinna með þetta. Kærar þakkir fyrir okkur." — Viktoría hjá Dominos
„Virkilega vel sett upp námskeið sem gaf manni góðan skilning á virkni Claude. 5 stjörnur af 5." — Mars Media
„Flott og gagnlegt námsskeið." — RVKMMA
„Námskeiðið gaf góða innsýn í hversu öflugt verkfæri Claude er. Ég var að nota annað gervigreindartól fyrir námskeiðið en var snögg að færa mig yfir í Claude. Námskeiðið var vel sett fram, mikið af efni og gott að fá aðgang að efninu eftir að námskeiðinu lauk. Kennari bjó yfir mikilli þekkingu á verkfærinu og verklegu dæmin sem voru lögð fyrir voru gagnleg og auðvelt að tengja við." — Júlía

 


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð 59.900 kr
RSÍ endurmenntun 19.990 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.

Flokkar: Almenn námskeið
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Claude AI á Íslandi - Gerðu meira með gervigreind 10. sep. 2026 - 11. sep. 2026 Rafmennt ehf. 09:00 - 12:30 Stórhöfði 27 19.990 kr. Skráning