
Viltu nýta gervigreind sem hönnuð er fyrir raunverulegan rekstur til að spara tíma, bæta vinnubrögð og auka framleiðni?
Claude á Íslandi er fyrsta íslenska námskeiðið um Claude — eitt öflugasta AI-módel heims frá Anthropic.
Þetta er hagnýtt, 3,5 klukkustunda námskeið þar sem þú lærir að nýta gervigreind í daglegu starfi, á raunverulegum verkefnum tengdum rekstri. Hvort sem þú ert að skrifa, greina gögn, búa til kynningar eða skipuleggja verkefni, færðu verkfæri sem þú getur notað strax.
Kynningu á Anthropic og Claude — hvað gerir þetta módel sérstakt
Hagnýt dæmi — Claude í Excel, PowerPoint, Chrome og fleiru
Prompt engineering — hvernig þú færð bestu niðurstöðurnar úr Claude
Lifandi sýnikennslur — raunveruleg dæmi í rauntíma
Samtengingar — Claude í Chrome, Cowork, MCP og tengingar við innri skjöl
Ari Auðunn Jónsson er með vottanir frá Anthropic og Google og hefur unnið með Claude síðan 2024.
Í daglegum störfum hjálpar hann litlum og meðalstórum fyrirtækjum að taka fyrstu skrefin í gervigreind — allt frá stefnumótun og innleiðingu yfir í sérsniðnar AI-lausnir, SaaS-kerfi og sjálfvirka agenta sem spara tíma og auka framleiðni.
Sú reynsla er grunnurinn að námskeiðinu: hagnýt þekking sem nýtist strax í raunverulegum verkefnum.
Námskeiðið er á íslensku og hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja nýta gervigreind betur í starfi.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
Fullt verð: 26.500 kr
RSÍ endurmenntun: 8.990 kr
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Claude AI á Íslandi - Gerðu meira með gervigreind | 16. apr. 2026 | Rafmennt ehf. | 09:00 - 12:30 | Stórhöfði 27 | 8.990 kr. | Fullt |
| Claude AI á Íslandi - Gerðu meira með gervigreind | 21. apr. 2026 | Rafmennt ehf. | 09:00 - 12:30 | Stórhöfði 27 | 8.990 kr. | Fullt |
| Claude AI á Íslandi - Gerðu meira með gervigreind | 27. apr. 2026 | Rafmennt ehf. | 17:00 - 21:30 | Stórhöfði 27 | 8.990 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050