Áfangaheiti: BRUN08ÞÉTT

 
Viðfangsefni námskeiðsins eru hinar ýmsu gerðir af brunaþéttingum.
 
Fylgt er reglugerð um brunavarnir, einnig læra nemendur skil á brunahólfun mannvirkja, hinum ýmsu gerðum
brunaþéttinga, eiginleikum þeirra, notkunarsviði og helstu reglum þar um.
 

Athugið: Þátttakendur sem ljúka þessu námskeiði fá heimild til þess að starfa við brunaþéttingar þar sem fyrir liggur starfsleyfi frá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun og eiga þá einnig kost á því að sækja um starfsleyfi sjálfir að fengnu meistarabréfi.

Eftir þetta námskeið hafa þátttakendur einnig heimild til þess að lagfæra brunaþéttingar eftir sjálfa sig og eftir aðra iðnaðarmenn.

Sjá frekari upplýsingar á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Nánar

Námskeiðið er kennt bæði í stað- og fjarkennslu. Staðkennsla fer fram á Stórhöfða 27, en fjarkennsla í rauntíma í gegnum Teams.



Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 19.400 -

SART: 16.490.-

RSÍ Endurmenntun: 6.790.-

Er í meistaraskóla: 3.880.-

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.


Flokkar: Endurmenntun
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Brunaþéttingar 03. sep 2025 Guðmundur Gunnarsson 08.30-12.30 Stórhöfða 27 og Teams 6.790 kr. Skráning