Námskeið í samstarfi við Öryggisskóla Iðnaðarins

Áfangaheiti: ÖRYG04AukÖry

Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum
Fullt verð
40.000 kr
RSÍ endurmenntun
8.000 kr
Skrá mig

Um námskeiðið

Námskeiðið fjallar um hvernig hægt er að efla öryggismenningu í bygginga- og mannvirkjageiranum með nýrri, nútímalegri nálgun sem leggur áherslu á að vinna með aðferðir, aðstæður og vinnuumhverfi.

Þátttakendur læra hvernig traust, opnar umræður og markviss lærdómur geta stutt við breytingar á viðhorfum og skapað öruggara og stöðugra vinnuumhverfi.

Markmið

Markmiðið er að byggja ofan á þann öryggisþekkingargrunn sem þátttakendur þegar hafa og bjóða upp á nýja nálgun sem hjálpar til við að endurhugsa hefðbundna sýn og nálgast öryggismál á dýpri og markvissari hátt.

  • Skilja helstu meginreglur nýrrar öryggisnálgunar og hvernig hún breytir hefðbundnum áherslum
  • Læra að greina hættur, veikleika og gildrur í verkferlum og skipulagi
  • Þróa færni í að spyrja opnar, gagnlegar spurningar og byggja upp traust á verkstöðum
  • Fá skýra innsýn í hvernig stjórnendur geta leitt öryggisstarf með áherslu á lærdóm, samvinnu og umbætur
Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla sem vilja styrkja öryggismenningu, bæta ákvarðanatöku og auka faglegan árangur í bygginga- og mannvirkjageiranum:

  • Stjórnendur, verkstjórar og verkefnastjórar sem vilja leiða breytingar á vinnustað
  • Gæðastjórar og öryggisstjórar sem vilja efla kerfisbundið öryggis- og gæðastarf
  • Fyrirtækjaeigendur og lykilákvarðendur sem vilja fjárfesta í öruggari og skilvirkari starfsemi
  • Verkkaupa í opinberum og einkareknum framkvæmdum sem vilja tryggja gæði og öryggi frá fyrstu ákvörðun
  • Opinbera starfsmenn sem starfa við útboð, útboðsgerð og verkkaupaferli og vilja byggja inn sterkari öryggissjónarmið
  • Alla sem hafa áhrif á öryggi, skipulag eða framkvæmd verkefna
Skipulag

Námið er staðarnám og kennt frá 09:00 – 12:30. Kennt verður á föstudögum.

Ávinningur

Námskeiðið veitir þátttakendum skýra og hagnýta innsýn í hvernig hægt er að byggja upp öruggara, skilvirkara og faglegra vinnuumhverfi með nútímalegri nálgun á öryggisstarf. Þú færð meðal annars:

  • Nýja sýn á öryggi – frá einstaklingsáherslu yfir í greiningu á kerfum, aðstæðum og vinnuflæði
  • Betri ákvarðanatöku með dýpri skilningi á því hvað raunverulega skapar áhættu
  • Öflugri samskiptafærni sem stuðlar að trausti, gagnsæi og opnum umræðum
  • Verkfæri til að læra af atvikum og breyta frávikum í umbótatækifæri
  • Sterkari öryggismenningu sem byggir á fagmennsku og stöðugri þróun
  • Hagnýtar, innleiðanlegar aðferðir sem nýtast strax í daglegum aðstæðum

  2 skipti í boði: september

  3,5 klst. – staðnám

  Rafmennt, Stórhöfða 27

Dagskrá

Nokkrar dagsetningar í boði — veldu það sem hentar.

  Föstudagurinn 11. september 09:00 – 12:30
  Föstudagurinn 25. september 09:00 – 12:30

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð 40.000 kr
SART 32.000 kr
RSÍ endurmenntun 8.000 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Flokkar: Endurmenntun
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum 11. sep. 2026 Rafmennt ehf. 09:00-12:30 Stórhöfði 27 8.000 kr. Skráning
Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum 25. sep. 2026 Rafmennt ehf. 09:00-12:30 Stórhöfði 27 8.000 kr. Skráning