Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR

Andleg þrautseigja

Andleg þrautseigja
Gervigreindarmynd
Fullt verð
25.000 kr
RSÍ endurmenntun
8.900 kr
Skrá mig

Lífinu fylgja bæði minni- og meiriháttar erfiðleikar, það er hluti af því að vera manneskja með flókið hormóna- og taugakerfi að upplifa alls konar tilfinningar eins og depurð, kvíða, streitu eða sorg. Við höfum ekki stjórn á þessu, en það sem við höfum stjórn á er það hvernig við bregðumst við þessum erfiðleikum og við getum byggt upp andlega þrautseigju okkar í að takast á við allt sem kemur upp í lífinu.

Markmiðið með námskeiðinu er að
  • Öðlast þekkingu á andlegri þrautseigju
  • Læra um tilfinningakerfi heilans
  • Tileinka sér núvitund og hagnýta í daglegu lífi
  • Nota öndunartækni í streituvaldandi aðstæðum og skilja áhrif hennar á heilann
  • Virkja jákvæðar tilfinningar eins og þakklæti og fá innsýn í áhrif þess á hjarta og heila
  • Læra um merkingu og gildi, vita hvaða svið í lífinu eru merkingarbærust og setja markmið út frá gildum sínum
Fyrir hverja er námskeiðið

Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja styrkja andlega þrautseigju sína og læra að takast á við áskoranir lífsins á uppbyggilegan hátt. Þú munt öðlast betri skilning á tilfinningakerfi heilans, nýta núvitund og öndunartækni, og virkja jákvæðar tilfinningar eins og þakklæti.

Skipulagið

Námskeið er stafrænt. Það er alltaf opið og hver þátttakandi vinnur á sínum tíma og hraða.

  Sveigjanlegar dagsetningar

  Á eigin hraða

  Kennslukerfi Opna háskólans í HR

Leiðbeinandi

Sigrún Þóra Sveinsdóttir
Sálfræðingur og leiðtogi sálfræðiþjónustu fullorðinna í Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu

Sigrún Þóra er doktorsnemi í sálfræðideild Háskólans í Reykjavík þar sem hún sérhæfir sig meðal annars í lífeðlislegri sálfræði á tengslum milli hjarta og heila og áhrifum þeirra á hugræna frammistöðu og andlega heilsu. Hún hefur starfað sem sálfræðingur lögreglu þar sem hún þjálfaði lögregluþjóna í að byggja upp andlega þrautseigju og streituþol.

Sigrún Þóra hefur unnið með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga og starfað meðal annars sem yfirsálfræðingur Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, sálfræðingur hjá Ljósinu og sem sjálfstætt starfandi sálfræðingur. Hún er einnig stofnandi og meðeigandi hugbúnaðarfyrirtækisins Proency sem sérhæfir sig í lausnum sem meta andlega heilsu í rauntíma.

Sjá einnig grein Sigrúnar Þóru: Andleg þrautseigja – að vaxa í gegnum áskoranir


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð 25.000 kr
RSÍ endurmenntun 8.900 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Flokkar: Almenn námskeið
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Andleg þrautseigja 01. okt. 2026 - 19. des. 2026 Alltaf opið Á netinu 5.900 kr. Skráning