Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað prentsmiðum, grafískum hönnuðum og öllum sem starfa í tengdum greinum innan prentiðnaðar og hönnunar. Einnig hentar það þeim sem vilja bæta við sig þekkingu og færni í hreyfihönnun og markaðsmiðlun á stafrænum vettvangi.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur læri að hanna og framleiða einfaldar hreyfimyndir sem fanga athygli og nýtast í markaðsstarfi fyrirtækja eða fjölmiðlum.
Þátttakendur öðlast grunnfærni í notkun Adobe After Effects og fá innsýn í hvernig nýta má önnur forrit, svo sem Figma, við gerð hreyfihönnunar – til dæmis fyrir vefborða og auglýsingar.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
Að loknu námskeiði á nemandi að:
Aðrar upplýsingar:
Kennari á námskeiðinu er Steinar Júlíusson, reynslumikill og farsæll hreyfihönnuður.
Hann hefur starfað fyrir H&M, Acne Stockholm, Unicef á Íslandi, Borgarleikhúsið og Absolut Vodka, auk þess að hafa kennt við Listaháskóla Íslands og hinn virta Berghs School of Communication í Stokkhólmi.
Þeir sem taka þátt í fjarnámi þurfa að hafa aðgang að Adobe After Effects á eigin tölvu.
Fullt verð: 45.000 kr
SART: 38.250 kr
RSÍ endurmenntun: 15.750 kr
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| After Effects - Hreyfihönnun frá A-Ö | 01. sep. 2026 - 08. sep. 2026 | Iðan-fræðslusetur ehf. | 18:00 - 21:00 | Vatnagarðar 20 | 15.750 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050