Námskeið í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands
Grunnatriðin í Adobe Lightroom — haltu utan um myndirnar þínar, bættu ljós og liti og deildu þeim hvar sem er.
Á þessu námskeiði lærir þú grunnatriðin í Adobe Lightroom. Hvernig þú getur haldið utan um myndir í símanum þínum og/eða tölvu, bætt ljós og liti og lagað útlit mynda sem teknar eru með síma eða myndavél. Myndirnar vistast í skýjalausn og eru því aðgengilegar jafnt í síma, spjaldtölvu og tölvu. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa einhverja reynslu í myndvinnslu.
Tilvalið fyrir fólk sem vill fá betri yfirsýn yfir myndirnar sínar og læra einfaldar aðgerðir til að gera þær betri og deila með öðrum. Hentar byrjendum jafnt þeim sem lengra eru komnir.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Ávinningur þinn:
Mikilvægt er að þátttakendur séu búnir að sækja og setja upp Adobe Lightroom á símanum, spjaldtölvu og/eða tölvu. Við upphaf námskeiðs er gert ráð fyrir því að þátttakendur séu með Adobe Lightroom forritið uppsett og tilbúið til notkunar.
Á heimasíðu Adobe er hægt að nálgast forritið, en boðið er upp á fría útgáfu sem gildir í viku. Áskrift að forritinu kostar 11,99 USD á mánuði miðað við árs áskrift.
Ennfremur er hægt að kaupa forritið á Íslandi hjá Hugbúnaðarsetrinu.
Athugið að með áskrift fylgir 1TB gagnapláss í skýjalausn Adobe.
Lágmarkskröfur vélbúnaðar fyrir Adobe Lightroom:
22. – 26. október 2026
6 klst. – 2 skipti
Endurmenntun Háskóla Íslands
| Fimmtudagurinn 22. október 16:30 – 19:30 |
| Mánudagurinn 26. október 16:30 – 19:30 |
Christopher Lund er atvinnuljósmyndari með yfir 20 ára reynslu. Hann hefur kennt stafræna myndvinnslu um árabil. Chris er sérfræðingur varðandi utanumhald myndasafna og bestun mynda fyrir ólíka notkun þeirra.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
| Fullt verð | 43.900 kr |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 15.500 kr |
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Adobe Lightroom fyrir byrjendur | 22. okt. 2026 - 26. okt. 2026 | Rafmennt ehf. | 16:30 – 19:30 | Dunhaga 7 | 15.500 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050