Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
Áfangaheiti: STAR02Starsam I
Á þessu hagnýta undirbúningsnámskeiði er fjallað um hvernig leiða má starfsmannasamtöl á faglegan, uppbyggilegan og markvissan hátt. Markmiðið er að þátttakendur öðlist verkfæri og færni til að tryggja að starfsmannasamtöl séu skipulögð, skýr og árangursrík, þannig að þau skili ekki einungis góðu samtali heldur einnig skýrum væntingum, betri samskiptum og raunhæfum næstu skrefum fyrir bæði stjórnendur og starfsmenn.
Þetta hagnýta undirbúningsnámskeið er ætlað stjórnendum með mannaforráð sem vilja leiða starfsmannasamtöl á faglegan, uppbyggilegan og markvissan hátt. Námskeiðið veitir skýr verkfæri og grunn í samtalstækni sem hjálpa þér að undirbúa, byggja upp og fylgja eftir starfsmannasamtölum þannig að þau skili skýrum væntingum, betri samskiptum og raunhæfum næstu skrefum fyrir bæði stjórnanda og starfsmann. Áhersla er lögð á virka hlustun, uppbyggilega endurgjöf og eftirfylgni, auk hagnýtra dæma sem má beita strax í daglegu starfi.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum á öllum stigum, svo sem teymisstjórum, deildarstjórum, verkefnastjórum og framkvæmdastjórum, sem hafa mannaforráð og taka starfsmannasamtöl sem hluta af starfi sínu. Það hentar jafnt þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í stjórnunarhlutverki og þeim sem vilja efla færni sína og gera starfsmannasamtöl markvissari og árangursríkari.
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.
Sveigjanlegar dagsetningar
Á eigin hraða
Kennslukerfi Opna háskólans í HR
Dr. Þóra Þorgeirsdóttir
Lektor við Háskólann í Reykjavík
Þóra er með doktorspróf í mannauðsstjórnun frá Cranfield háskóla í Bretlandi, hefur starfað sem stjórnandi til margra ára og hefur sérstaka ástríðu fyrir öllu sem snýr að velferð, vexti og vellíðan fólks í víðu samhengi.
Þóra hefur í mörg ár rannsakað og kennt stjórnun, vinnusálfræði, vellíðan í vinnu og samskipti á vinnustöðum og haldið fjölmörg námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir um andlega heilsu og líðan á vinnustað.
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
| Fullt verð | 15.900 kr |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 5.600 kr |
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Að taka starfsmannasamtal | 01. okt. 2026 - 19. des. 2026 | Alltaf opið | Á netinu | 5.600 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050