Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR

Áfangaheiti: STAR02Starsam II

Þetta undirbúningsnámskeið hjálpar þér að mæta vel undirbúin í starfsmannasamtal, taka virkan þátt og nýta samtalið til að hafa raunveruleg áhrif á eigið starf, samskipti og starfsþróun. Áhersla er lögð á að starfsmannasamtalið verði meira en gott spjall og leiði til skýrra væntinga og hagnýtra næstu skrefa.

Á námskeiðinu verður farið yfir
  • Tilgang starfsmannasamtala
  • Undirbúning starfsmannsins
  • Uppbyggingu starfsmannasamtals
  • Hvernig eigi að taka virkan þátt í samtalinu
  • Endurgjöf
  • Markmið og eftirfylgni
Um námskeiðið

Á þessu hagnýta námskeiði lærir þú hvernig þú undirbýrð þig fyrir starfsmannasamtal, tekur virkan þátt í samtalinu og kemur sjónarmiðum þínum á framfæri á faglegan og uppbyggilegan hátt. Farið er yfir tilgang og uppbyggingu starfsmannasamtala, samtalstækni, endurgjöf og eftirfylgni, með það að markmiði að samtalið nýtist bæði þér og yfirmanni þínum. Námskeiðið byggir á raunhæfum dæmum og tengir umræðuna við kenningar vinnusálfræðinnar um kröfur og úrræði, sem nýtast sérstaklega vel þegar rætt er um álag, streitu og stuðning í starfi.

Fyrir hverja er námskeiðið

Námskeiðið er ætlað starfsfólki sem er að fara í starfsmannasamtal, hvort sem það er fyrsta samtalið eða eitt af mörgum. Það hentar öllum sem vilja vera betur undirbúin, taka meira virkan þátt og nýta starfsmannasamtalið til að hafa áhrif á eigið starf og vinnuumhverfi.

Skipulagið

Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.

Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.

Hagnýtar upplýsingar

Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Athugaðu hvort þú átt rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið hjá þínu stéttarfélagi.

  Sveigjanlegar dagsetningar

  Á eigin hraða

  Kennslukerfi Opna háskólans í HR

Leiðbeinandi

Dr. Þóra Þorgeirsdóttir
Lektor við Háskólann í Reykjavík

Þóra er með doktorspróf í mannauðsstjórnun frá Cranfield háskóla í Bretlandi, hefur starfað sem stjórnandi til margra ára og hefur sérstaka ástríðu fyrir öllu sem snýr að velferð, vexti og vellíðan fólks í víðu samhengi.

Þóra hefur í mörg ár rannsakað og kennt stjórnun, vinnusálfræði, vellíðan í vinnu og samskipti á vinnustöðum og haldið fjölmörg námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir um andlega heilsu og líðan á vinnustað.


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð 15.900 kr
RSÍ endurmenntun 5.600 kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Flokkar: Almenn námskeið
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Að fara í starfsmannasamtal 01. okt. 2026 - 19. des. 2026 Alltaf opið Á netinu 5.600 kr. Skráning