Lærðu að skanna raunverulega hluti, umbreyta þeim í nákvæm þrívíddarlíkön og endurgera eða hanna íhluti út frá þeim.
Námskeiðið er ætlað iðnaðarmönnum, hönnuðum, tæknifólki, viðhaldsaðilum, nemendum og öðrum sem vilja nýta 3D skönnun til að endurgera, breyta eða hanna íhluti fyrir framleiðslu, viðgerðir eða þrívíddarprentun.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á helstu aðferðum við 3D skönnun og geti undirbúið hluti fyrir skönnun, unnið úr skanngögnum og endurskapað eða hannað íhluti út frá þeim.
Engar sérstakar forkröfur eru gerðar, en grunnþekking á tölvunotkun og áhugi á hönnun eða þrívíddartækni er kostur.
Allur nauðsynlegur búnaður, 3D skannar og hugbúnaður eru til staðar á námskeiðinu. Þátttakendur vinna verkleg verkefni og fá tækifæri til að skanna hluti, vinna úr gögnum og prófa eigin hönnun með þrívíddarprentun.
2 hópar í boði: nóvember
12 klst. – 3 kennsludagar
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20
Þriggja daga námskeið, 4 klukkustundir hvert skipti — veldu þann hóp sem hentar.
Hópur 1
| Mánudagurinn 9. nóvember 17:00 – 21:00 |
| Þriðjudagurinn 10. nóvember 17:00 – 21:00 |
| Miðvikudagurinn 11. nóvember 17:00 – 21:00 |
Hópur 2
| Mánudagurinn 16. nóvember 17:00 – 21:00 |
| Þriðjudagurinn 17. nóvember 17:00 – 21:00 |
| Miðvikudagurinn 18. nóvember 17:00 – 21:00 |
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.
| Fullt verð | 85.000 kr |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 29.000 kr |
Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið rafmennt (hjá) rafmennt . is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
| Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 3D skönnun og endurgerð hluta | 09. nóv. 2026 - 11. nóv. 2026 | Rafmennt ehf. | 17:00 - 21:00 | Vatnagarðar 20 | 29.000 kr. | Skráning |
| 3D skönnun og endurgerð hluta | 16. nóv. 2026 - 18. nóv. 2026 | Rafmennt ehf. | 17:00 - 21:00 | Vatnagarðar 20 | 29.000 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050