Námskeið í samstarfi við Vinnuverndarnámskeið ehf.
Áfangaheiti: ÖRYG02HÆÐ
Námskeiðið er kennt í fjarfundi gegnum Teams.
Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og sýndur er fjöldi mynda og myndbanda af raunverulegum aðstæðum
Hvað er vinna í hæð?
Farið er yfir hvernig má vinna í hæð á öruggan hátt. Áhættumat við vinnu í hæð þarf að fara fram nokkru áður en vinnan hefst.
Á námskeiðinu er m.a. fjallað um handrið og hlera, röraverkpalla og nýlega reglugerð um þá, trévinnupalla, hjólapalla, lyftiverkpalla, hengiverkpalla, skæralyftur og að lyfta fólki með vinnuvélum, t.d. spjótum, krönum og lyfturum. Einnig er fjallað um stiga, tröppur, fallbelti og línur.
Að lokum er fjallað um skráningu, tilkynningu og tölfræði fallslysa.
Fullt verð: 18.800 kr
RSÍ endurmenntun: 5.593 kr
Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
---|---|---|---|---|---|---|
Vinna í hæð - Fallvarnir | 05. jún | kl 13-15 | Teams | 5.593 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 - 110 Reykjavík - Sími: 540-0160 - rafmennt@rafmennt.is KT: 590104-2050