RAFMENNT og Dale Carnegie á Íslandi hafa gert með sér samkomulag um námskeiðahald. Námskeiðið er live online útfærsla af hinu þekkta Dale Carnegie námskeiði þar sem þátttakendur vinna í samskiptum, styrkja sambönd, efla leiðtogahæfileika og tjáningu og læra að stjórna streitu og vinna undir álagi. Námskeiðið nýtist bæði í vinnu og einkalífi og hefur live online útgáfan fengið mjög háa einkunn hjá þátttakendum.
Áfangaheiti: ALMN24DaleCalive
Með því að auka sjálfstraust og færni í samskiptum við aðra munt þú hafa þau áhrif sem þú þarft til að ná nýjum hæðum í leik og starfi. Þú verður meira sannfærandi í tjáskiptum og átt auðveldara með að takast á við breytingar, stjórna streitu og hafa hvetjandi áhrif á aðra. Dale Carnegie námskeiðið hjálpar þér að verða snillingur í mannlegum samskiptum. Það mun gera þér kleift að þrífast í hvaða umhverfi sem er og þú munt uppgötva hvernig á að mynda nánari og meira gefandi sambönd. Live online útgáfan mun einnig þjálfa þig að koma fram á fjarfundum og eiga fagleg samskipti í gegnum netið.
Námskeiðið er haldið Live Online á netinu, 8 skipti, í þrjá tíma í senn. Þú velur dagsetningu sem þér hentar og skráir þig. Áður en námskeiðið hefst sendum við þér slóð sem þú smellir á og þá opnast þjálfunarumhverfið. Á okkar námskeiðum eru alltaf tveir þjálfarar og annar þeirra er tæknimaður, þér til aðstoðar allan tímann. Á nokkrum mínútum kennum við þér á kerfið og eftir það tekur þú virkan þátt. Einfalt, skemmtilegt og árangursríkt.
Handbók, millifundir, Gullna reglubókin, 30 daga áskrift af Storytel þar sem hægt er að hlusta á bækurnar Vinsældir og áhrif og Lífsgleði njóttu eftir Dale Carnegie. Útskriftarskírteini frá Dale Carnegie & Associates. Persónulegur aðgangur að þjálfara meðan á námskeiðinu stendur.
Fullt verð: 185.000 kr
Verð fyrir félagsmenn: 55.500 kr
Heiti námskeiðs | Dags. | Kennarar | Tími | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
---|---|---|---|---|---|---|
Dale Carnegie Live Online | 11. okt - 29. nóv | 18:00 - 21:00 | Fjarkennsla | 55.500 kr. | Skráning |
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • Sími: 540-0160 • rafmennt@rafmennt.is • Kt. 590104-2050