Námsmarkmið

Markmið með námskeiðinu er að efla, þroska og bæta árangur einstaklingsins í lífi og starfi. Námskeiðið miðar að því að gera þátttakendur hæfari í að koma sér á framfæri og greina stöðu sína sem einstaklinga og gera þeim kleift að tileinka sér ákveðna hugsun, hegðun og leiðir til að efla sig sem persónur. Kenndar eru ákveðnar aðferðir sem hjálpa þátttakendum að finna og nýta styrkleika sína.

Kennsluform

Fyrirlestur, umræður, verkefni, dæmisögur og myndskeið. Á þessu námskeiði er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni verkefni milli skipta auk lokaverkefnis.

Lengd námskeiðs

4 skipti, 3 tímar í senn.

Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að styrkja þátttakendur í sex lykilskrefum á leið þeirra til aukinnar velgengni í lífinu:

1. Markmiðasetning

Til að ná árangri þarf að skipuleggja sig og setja sér markmið. Hvernig geri ég betur?

Unnið með: DUMB aðferðafræðina, 80/20% regluna, tímastjórnun, aga og vilja.

2. Samskipti

Í samskiptum er sjálfsmeðvitund mikilvæg, að gefa sér tíma, hlusta, hrósa og gagnrýna á uppbyggilegan hátt og semja þannig að allir gangi sáttir frá borði.

Unnið með: Samskiptaform, samningatækni, áhrif og mikilvægi hegðunar í samskiptum.

3. Sjálfsefling

Ferðalag með fyrirheit þar sem vilji og agi kallast á og skila þér á áfangastað.

Unnið með: Styrkleika, sjálfstraust, áskoranir og þroskaferli.

4. Fjármál

Þarf ég að vera fátækur ef ég verð ekki ríkur?

Unnið með: Viðhorf til peninga, yfirsýn, skipulag og markmið.

5. Heilsa

Góð andleg og líkamleg heilsa er grunnurinn að því að geta gert það sem ég vil í lífinu.

Unnið með: Mataræði, hreyfingu, hugarfar og hamingju.

6. Framkoma

Góð og örugg framkoma lætur mér líða betur í eigin skinni, styrkir mig sem einstakling og hvetur fólk til liðs við mig.

Unnið með: Grunnatriði í framkomu og að öðlast kjark til að tjá mig fyrir framan fólk.

 

Leiðbeinandi

Ragnar Matthíasson mannauðsráðgjafi – MBA og MSc. í mannauðsstjórnun.

Ragnar hefur víðtæka reynslu af námskeiðahaldi og ráðgjöf. Hann hefur unnið fyrir fjölda fyrirtækja af ýmsum stærðum og gerðum.

 

Námskeiðið er kennt við Ármúla 4-6, 108 Reykjavík.


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 89.000 kr.-

RSÍ endurmenntun: 31.150 kr.-

 

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni

Flokkar: Almenn námskeið