Erindrekar
Smíðaðu þitt eigið teymi erindreka (e. AI agents) sem vinnur verkin undir þinni stjórn.
Lýsing
Námskeiðið fjallar um hvernig erindrekar (e. AI agents) virka og hvernig þeir eru smíðaðir.
Erindrekar taka við markmiði, ákveða sjálfir næstu skref og vinna verkið með þeim verkfærum og gögnum sem þeir hafa aðgang að. Farið er yfir muninn á erindrekum og spjallmennum, hvaða verkefni henta erindrekum og hvernig þeim eru sett hlutverk, fyrirmæli og öryggismörk.
Nemendur læra að tengja erindreka við verkfæri, gögn og ólík kerfi, prófa þá og lagfæra. Nemendur smíða tvo til þrjá erindreka sem sinna hver sínu verkefni og loks yfir-erindreka sem stýrir hinum og útdeilir til þeirra verkefnum.
Nánari lýsing
Erindrekar: smíðaðu þitt eigið gervigreindarteymi
Notar þú ChatGPT, Claude, Gemini eða önnur gervigreindarverkfæri reglulega og vilt komast lengra?
Þá er næsta skref að láta gervigreindina ekki aðeins svara, heldur líka vinna verkin.Erindrekar (e. AI agents) taka við markmiði, ákveða sjálfir næstu skref og vinna verkið með þeim verkfærum og gögnum sem þeir hafa aðgang að.
Á þessu hagnýta fjögurra klukkustunda námskeiði lærir þú hvernig erindrekar virka og smíðar þitt eigið teymi. Unnið verður með Claude og Codex. Á námskeiðinu er byggt upp lítið teymi erindreka sem eru látnir vinna raunveruleg verkefni. Settur er upp yfir-erindreki sem stýrir teyminu og útdeilir verkefnum til annarra erindreka. Annar erindreki hefur það hlutverk að yfirfara vinnuna.
Þú átt aðallega í samskiptum við yfir-erindrekann, setur honum markmið, metur niðurstöðurnar og stýrir framhaldinu. Þú lærir líka að gefa erindrekum viðeigandi samhengi og vista leiðbeiningar, svo hægt sé að halda áfram með sama teymi síðar. Þú færð svo tíma til að prófa teymið þitt og þróa það áfram og ferð heim með eitthvað sem þú getur byggt á. Þátttakendur skoða líka tengingar við ólík kerfi sem hjálpa erindrekum að vinna verkin og hvernig þau eru tengd með MCP. Þau sem vilja geta svo fylgt sömu skrefum og prófað tengingarnar.
Að námskeiði loknu getur þú:
útskýrt hvernig erindrekar virka og hvað greinir þá frá spjallmennum
metið hvaða verkefni henta erindrekum og hver ekki
gefið erindrekum skýrt hlutverk, fyrirmæli og viðeigandi samhengi
vistað leiðbeiningar og haldið áfram með sama teymi síðar
smíðað lítið teymi þar sem yfir-erindreki stýrir og annar erindreki yfirfer vinnuna
prófað erindreka, lagfært þá og sett þeim skýr mörk
metið niðurstöður teymisins og stýrt framhaldinu
útskýrt hvernig erindreki er tengdur við önnur kerfi
Fyrir hverja?
Námskeiðið er ætlað fólki sem er vant að vinna með gervigreind, til dæmis ChatGPT, Claude eða Gemini, en hefur ekki smíðað erindreka áður. Það hentar ekki byrjendum í notkun gervigreindar. Forritunarkunnátta er ekki skilyrði.
Undirbúningur og búnaður
Þátttakendur þurfa að mæta með:
fartölvu
greidda áskrift að að minnsta kosti öðru af tveimur kerfum: Claude (Pro eða hærri) eða ChatGPT (Plus eða hærri), en Codex fylgir ChatGPT-áskrift
Þátttakendur fá sendar leiðbeiningar um uppsetningu fyrir námskeiðið. Gerð er krafa um að uppsetningu sé lokið og að allt sé tilbúið þegar námskeiðið hefst.
Gott er að koma með hugmyndir að verkefnum úr eigin starfi sem þú vilt láta erindrekateymið vinna.
Kennari
- Stefán Gunnarsson
Stefán, BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og stofnandi BrainBox. Hann hefur yfir áratuga reynslu sem frumkvöðull og stjórnandi í tæknigeiranum, meðal annars af hugbúnaðarþróun, vöruþróun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækis. Á síðustu árum hefur hann sérhæft sig í innleiðingu gervigreindar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Þar byggir hann upp örugg og skipulögð vinnuferli, tengir gervigreind við gögn og verkfæri og kennir fólki að fela henni verkefni undir eigin stjórn. Hann skrifar reglulega um þessi mál. Á námskeiðum sínum byggir Stefán á hagnýtri reynslu af vinnu með gervigreind, allt frá hugmyndaforritun (e. vibe coding) til erindreka sem vinna verkefni í mörgum skrefum.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 26. janúar 2027 · Þriðjudagur
- Tími
- kl. 08:30–12:30
- Staður
- Stórhöfði 27
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 19.990 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 7.500 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


