Fara beint í efni

Sveinspróf í rafveituvirkjun

Ekki er opið fyrir skráningu

Sveinspróf í rafveituvirkjun eru haldin í febrúar (viku 6) og júní (viku 23), ef næg þátttaka fæst.

Ferlið í stuttu máli

  1. Ljúktu vinnustaðanámi

    Samkvæmt námssamningi. Umsækjandi þarf að vera útskrifaður eða skráður útskriftarefni.

  2. Sæktu um innan umsóknarfrests

    1.–30. nóvember fyrir febrúar og 1.–31. mars fyrir júní. Gátlistinn á umsóknarsíðunni sýnir hvaða gögn þurfa að fylgja.

  3. Kynningarfundur

    Sveinsprófsnefnd kynnir prófin hjá Rafmennt og á Teams.

  4. Prófin

    Eftir dagskrá.

  5. Prófsýning og sveinsbréf

    Mennta- og barnamálaráðuneytið gefur út sveinsbréfin.

Umsóknarfrestur

Sveinspróf

Umsóknarfrestur

Febrúar

1.–30. nóvember

Júní

1.–31. mars

Námssamningar

Nemar í rafveituvirkjun og rafvélavirkjun gera námssamninga í sínu vinnustaðanámi. Umsóknir um gerð námssamnings, fylgiskjöl og eyðublöð eru á síðunni Námssamningar.

Reglugerðir

Umsjón