Áfangaheiti: RIGG24BASIC

Námskeiðslýsing

Á þessu grunnnámskeiði í rigging fá þátttakendur kennslu í meðferð sérhæfðs rigging búnaðar, öðlast færni og þekkingu svo sem á álags dreifingu þyngdar, notkun keðjutalía og keðjumótora, gerð áhættumats, vinnu í hæð, notkun fallvarna og fleira tengdum tímabundnum burðarvirkjum.

 

Þekkingarviðmið

  • Skilja tilgang og mikilvægi áhættumats á vinnusvæði og geta útskýrt meginreglur þess.
  • Þekkja helstu atriði í löggjöf ESB/Bretlands sem snúa að skipulagi, stjórnun, eftirliti og kröfum við tímabundin burðarvirki og vinnu í hæð.
  • Skilja hugtakið vinna í hæð, stigveldi varna, fallstuðla og kröfur um skoðun búnaðar.
  • Þekkja grundvallarhugtök í merkingu vinnusvæðis fyrir uppsetningu.
  • Skilja eiginleika og notkun mismunandi hífibúnaðar m.a. stroffur, augu, stálvíra og keðja.
  • Þekkja helstu hnútategundir og tengiaðferðir ásamt öryggisatriða tengdum þeim.
  • Skilja meginatriði útreikninga á tímabundnum burðarvirkjum, þ.m.t. áhrif horna, krafta, núnings, vefja og burðargetu.
  • Þekkja mismunandi endafestingar stálvíra (SWR) og kröfur um uppsetningu og skoðun þeirra.
  • Skilja samsetningu og burðargetu trussa, áhrif þríhyrninga, skástífa og tenginga.
  • Þekkja LOLER-kröfur og ábyrgð hæfs aðila við skipulagningu og framkvæmd tímabundinna burðarvirkja.
  • Skilja notkun mótora, fösun, keðjupoka og agaðs verklags til að koma í veg fyrir skemmdir.
  • Skilja meginreglur um aukahleðslur, dreifara (spreaders), annarskonar festinga og afleiðinga bilana.
  • Skilja hugtök um álagsdreifingu, varafestingar og krafta í hanafótum og keðjukerfum.
  • Skilja mikilvægi eftirlits, gátlista og öruggrar lyftingar/lækkunar eftir að uppsetningu er lokið.

Leikniviðmið

  • Framkvæmt áhættumat á vinnusvæði og greint helstu hættur.
  • Lesið úr vinnuteikningum og merkt vinnusvæði nákvæmlega með réttum viðmiðum og mælingum.
  • Framkvæmt fornotkunarskoðun á búnaði og greint galla eða óeðlilegt slit.
  • Bundið og notað hnúta á öruggan hátt í raunverulegum rigging-aðstæðum.
  • Beitt grunnreglum hífingar við val og uppsetningu stroffa og búnaðar.
  • Sett saman og skoðað SWR-endafestingar samkvæmt kröfum.
  • Samsett og meðhöndlað tröss á öruggan hátt, með réttri röðun, tengingum og varúð gegn skemmdum.
  • Framkvæmt rigging út frá teikningum og aðlagað breytingum á burðarkerfi.
  • Unnið örugglega með mótora, keðjur og keðjupoka og beitt réttum vinnubrögðum við notkun.
  • Framkvæmt hengingu á tössum (þríhyrning, ferning osfrv) með réttum hornum og spennu.
  • Bætt við tröss-hliðum og breytt kerfi til að tryggja stöðugleika.
  • Sett upp dreifara og aðrar festingar og metið áhrif aukahleðslu.
  • Framkvæmt örugga lyftingu og lækkun, fylgt gátlista og unnið undir viðeigandi eftirliti.
  • Útskýrt áhrif á álag og burð þegar upp koma bilanir í kerfi.
  • Tekið niður búnað á öruggan hátt og gengið frá honum þannig að hann sé tilbúinn til næstu notkunar.

Námsmat

Námskeiðið endar á lokaprófi sem gildir til einkunnar og staðfestingar á námskeiðslokum.

Upplýsingar

Kennari námskeiðsins er Chris Higgs frá Total Solutions sem hefur áratuga reynslu í uppsetningu tímabundinna burðarvirkja og námskeiðshaldi tengdu því.



 


Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð námskeiða.

Fullt verð: 275.000.- kr

RSÍ endurmenntun: 125.000.- kr

Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokkum og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Sé þátttakandi afskráður af námskeiði innan 6 vikna fyrir upphaf námskeiðs áskilur Rafmennt sér rétt til rukkunar á 25% af fullu námskeiðsgjaldi.


Flokkar: Tæknifólk
Heiti námskeiðs Dags. Kennarar Tími Staðsetning RSÍ endurmenntun Skráning
Grunnur í rigging 28. apr. 2026 - 30. apr. 2026 Chris Higgs 08:30 -16:30 Sýrland - Vatnagarðar 4 125.000 kr. Skráning