ESP32 örtölvan
Kynntu þér ESP32 og nýttu möguleika örtölvunnar í snjallar og skapandi lausnir.
Lýsing
Á þessu námskeiði kynnast þátttakendur ESP32 örtölvunni, eiginleikum hennar og fjölbreyttum notkunarmöguleikum í rafeindatækni, forritun og sjálfvirkni. Með verklegum æfingum læra þeir að forrita ESP32 í C/C++, tengja skynjara, ljós, hnappa og mótora og þróa einfaldar snjallstýringar.
Einnig verður farið yfir Wi-Fi samskipti, vefviðmót og miðlun gagna með MQTT. Námskeiðið hentar áhugafólki um tækni, nýsköpun, hönnun og listsköpun sem vill öðlast hagnýta grunnþekkingu á ESP32.
Námskeiðið er 12 kennslustundir með áherslu á verklega þjálfun. Þátttakendur fá ESP32 DevKit og tilheyrandi íhluti til eignar að námskeiði loknu.
Nánari lýsing
ESP32 er fjölhæfur og öflugur örgjafi. ESP32 er tvíkjarna örgjafi, hefur innbyggt Wi-Fi og Bluetooth, og er því kjörið val fyrir fjölbreytt úrval af notkunarsviðum, allt frá Hlutanets (IoT) tækjum til snjallklæða. Í ESP32 er nægt minni til að vinna meðstór forrit og gögn. Fjöldi tengimöguleika er í boði. GPIO pinnar, ADC (Analog-to-Digital Converter), DAC (Digital-to-Analog Converter), klukka og önnur samskiptaviðmót eins og SPI, I2C og UART sem hægt er nýta við aflestur skynjara og stýra stýringum. Einn helsti eiginleikin er lítil orkunotkun og hentar hann því vel sem val fyrir rafhlöðuknúin verkefni. Á þessu námskeiði verður ESP32 örgjafinn kynntur. Farið verður yfir uppbyggingu örgjafans og getu.Eiginleikar hanns kannaðir með hagnýtum verkefnum þar sem nýttir verða skynjarar, servómótorar,ljósadíóður, hnappar og annað tilfallandi. Unnið verður með að koma upplýsingum frá örtölvunni áframfæri, með vefsíðu eða auglýsa gögn með MQTT sem dæmi.
Fyrir hverja
Námskeiðið hentar fyrir þau sem hafa áhuga á rafeindatækni, forritun, nýsköpun, hönnun, listsköpun og þeim sem vilja öðlast nýja þekkingu á notkun smátölva í alls kyns verkefni og lausnir.
Markmið
Að loknu námskeiði mun þátttakandi vera með grunnþekkingu á ESP umhverfinu og færni við að hanna einfaldar stýringar, lesa af skynjurum og setja upp sjálfvirkni og viðbrögð við ýmsum breytum í umhverfinu. Þátttakendur munu öðlast færni í að nota búnaðinn fyrir ný- og listsköpun, iðnað, í leik og starfi.
Á námskeiðinu munt þú:
Læra grunnatriði ESP32, þar á meðal uppbyggingu og getu.
Fá hagnýta reynslu í að forrita ESP32.(C/C++)
Kynnast því hvernig tengja má og stjórna ýmsum skynjurum, servómótorum, ljósum og tökkum.
Uppgötva hvernig þessir íhlutir geta unnið saman til að búa til viðbragðsfljót og snjöll kerfi.
Koma upplýsingum á framfæri með vefviðmóti og auglýsa þær upplýsingar, svo önnur kerfi get nýtt þær.
Í lok námskeiðsins munt þú hafa traustan grunn í vinnu með ESP32 sem gerir þér kleift að takast á við eigin verkefni af öryggi. Hvort sem þú ert nýr í rafmagnsfræði eða vilt auka forritunarhæfileika þína, þá mun þetta námskeið veita þér þau verkfæri og þekkingu sem þú þarft til að nýta þér fjölmarga möguleika ESP32 örtölvunnar.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er 12 kennslustundir, dreift á þrjú kvöld, 4 klst í senn. Kennt verður á þriðjudögum frá 17:00 - 21:00.Fyrsta kvöldið er 17. mars, svo er kennt næstu tvö þriðjudagskvöld þar á eftir, 24. mars og 31. mars.Hver kennslustund er 60 mínútur. Í hverri kennslustund er gert ráð fyrir verklegum æfingum og örstuttu hléi.
Námskeiðsgögn
Kennslugögn í PDF formi, nemendur fá aðgang að fartölvu til leysa verkefnin en eru hvattir til að koma með eigin fartölvu.
Nemendur fá ESP32-WROOM DevKit einingu afhent á námskeiðinu til vinna verkefni námskeiðsins. Að loknu námskeiði fá þeir hann og aðra íhluti sem notaðir eru til eignar.
Kennari
- Unnar Elías Björnsson
Unnar hefur víðtæka reynslu af hugbúnaðarþróun og forritun, meðal annars í C, C++, C#, Java og Python. Hann hefur um árabil starfað við þróun hugbúnaðarlausna, samþættingu kerfa og innleiðingu nýrrar tækni.
Í meistaraverkefni sínu við Háskóla Íslands hannaði Unnar og smíðaði fjölnota skynjaraborð byggt á ESP32 örtölvunni, ætlað til kennslu í forritun, rafeindatækni og Interneti hlutanna (IoT). Verkefnið fól meðal annars í sér tengingu skynjara og stýringa við ESP32 og nýtingu fjölbreyttra samskiptaleiða.
Unnar sameinar þannig víðtæka reynslu af hugbúnaðarþróun og sérþekkingu á ESP32, með áherslu á hagnýta notkun tækninnar.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 3.–17. mars 2027 · Miðvikudagar
- Tími
- kl. 17:00–21; 00
- Staður
- Stórhöfði 27
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| RSÍ endurmenntun | 24.000 kr. |
|---|
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


