Home Assistanr - Grunnur
Kynntu þér Home Assistant og lærðu að stjórna heimilinu með einföldum sjálfvirknilausnum
Lýsing
Á námskeiðinu öðlast þátttakendur grunnþekkingu á Home Assistant hússtjórnarkerfinu og læra að setja upp, tengja og stjórna snjalltækjum. Farið er yfir uppsetningu kerfisins, samþættingu snjalltækja, gerð einfaldra sjálfvirknireglna og uppbyggingu skjáborða.
Áhersla er lögð á verklegar æfingar þar sem þátttakendur vinna með Home Assistant og fjölbreyttan snjallbúnað.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa góða almenna tölvukunnáttu og vilja kynnast möguleikum snjallheimila, án þess að forritunarkunnátta sé nauðsynleg.
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur öðlast færni til að setja upp eigið kerfi og þróa það áfram. Þátttakendur fá einnig USB-samskiptakubb fyrir Zigbee og Thread til eignar.
Nánari lýsing
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Snjallingur.is
Lýsing
Grunnnámskeið á Home Assistant hússtjórnarkerfi. Á námskeiðinu er farið í helstu þætti á Home Assistant,
allt frá uppsetningu, tengingu á snjalltækjum og búa til einfaldar sjálfvirknisreglur og skjáborð.
Áhersla er sett á verklega þætti. Allir þátttakendur fá aðgang að Home Assistant stýrikerfinu og sett af snjalltækjum sem verður að komast fyrir inn í Home Assistant á meðan námskeiðinu stendur.
Home Assistant er afar umfangsmikið og getur verið flókið en er jafnframt skemmtilegt og öflugt hússtjórnarkerfi. Leiðbeinandinn gefur góðar leiðbeiningar um helstu atriði sem þarf að hafa í huga
og einbeitir sér að þáttum sem skipta máli fyrir byrjendur.
Markmið
Að loknu námskeiði mun þátttakandi vera með grunnþekkingu á Home Assistant hússtjórnunarkerfinu og öðrum þáttum sem þarf að hafa þekkingu á. Þátttakandi mun afla sér þekkingar til þess að setja upp Home Assistant heima hjá sér og tengja og stjórna tækjabúnaði í gegnum Home Assistant.
Þátttakandinn fær innsýn hversu víðtækt Home Assistant hússtjórnunarkerfið getur orðið og sjá möguleikana í að stýra alskyns búnaði.
Fyrir hverja
Námskeiðið er áætlað öllum sem hafa áhuga á að kynna sér möguleikana í Home Assistant hússtjórnarkerfinu og afla sér grunnfærni í kerfinu. Þátttakandinn þarf að hafa góða almenna tölvukunnáttu. Ekki er krafist forritunarkunnáttu, þó að óhjákvæmilegt sé að geta unnið með .yaml stillingarskrár á einhverjum tímapunkti.
Þátttakandi ætti að vera tilbúinn að leggja frekari vinnu í Home Assistant til að útvíkka þekkingarsviðið og koma fleiri atriðum inn í Home Assistant. Æskilegt er að þátttakandi sé með færni að lesa GitHub leiðbeiningar á ensku.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er 12 kennslustundir, dreift á þrjú kvöld, þriðjudagana 9, 16. og 23. febrúar frá kl 17:00 - 21:00.
Hver kennslustund er 60 mínútur. Í hverri kennslustund er gert ráð fyrir verklegum æfingum og örstuttu hléi. Kvöldmatarhlé er á milli 19:00 og 19:30.
Námskeiðsgögn
Allir þátttakendur fá kennslugögn í PDF formi að námskeiðinu loknu.
Þátttakendur fá heim með sér usb-tengdan samskiptakubb að námskeiði loknu sem verður hægt að nota fyrir snjalltæki sem ganga fyrir Zigbee og Thread samskiptatækni.
Kennari
- Alexander Eck
Alexander Eck hefur yfir áratugs reynslu af upplýsingatækni, tækniráðgjöf og innleiðingu tæknilausna. Hann hefur komið að fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga, meðal annars við ráðgjöf, uppsetningu kerfa, lausn tæknilegra áskorana og kennslu.
Alexander hefur um árabil sérhæft sig í sjálfvirknilausnum og sett upp fjölda kerfa sem byggja á Home Assistant og annarri snjalltækni. Hann hefur víðtæka reynslu af samþættingu snjalltækja og þróun lausna sem einfalda daglegt líf og bæta nýtingu tækninnar.
Alexander leggur áherslu á hagnýta kennslu og að útskýra flókin tæknileg viðfangsefni á skýran og aðgengilegan hátt.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 9.–23. mars 2027 · Þriðjudagar
- Tími
- kl. 17:00–21:00
- Staður
- Stórhöfði 27
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| RSÍ endurmenntun | 19.900 kr. |
|---|
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


