Skyndihjálp SKHJ04ALM
Lýsing:Viðfangsefni námskeiðsins er grundvallarreglur skyndihjálpar. Aðkoma að slysum, algeng bráða veikindatilfelli, endurlífgun, hjartastuðtæki og aðskotahlutur í öndunarvegi. Einnig verður farið yfir sár og sárameðferð, blóðrásarkerfið og lost, brunasár, beinbrot, sykursýki og flogaveiki.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra og viðhalda kunnáttu sinni í skyndihjálp. Á námskeiðinu er meðal annars farið í endurlífgun og viðbrögð við bráðaveikindum auk umfjöllunar um helstu viðbrögð við algengum áverkum
Námskeiðið nýtist vel sem upprifjunarnámskeið í skyndihjálp en námskeiðið er opið öllum.
Stórhöfða 27 - 110 Reykjavík - Sími: 540-0160 - rafmennt@rafmennt.is KT: 590104-2050