Rafmagnsöryggi (RAFM08ÖRYG)
Lýsing: Viðfangsefni námskeiðsins er rafmagnsöryggi. Fjallað er um helstu hættur af rafmagni, áhrif rafmagns á mannslíkamann, ljósbogahættur, örugg vinnubrögð og persónuhlífar.
Rafmagn getur verið hættulegt og þessar hættur leynast víða, bæði í hugsun og hegðun fólks sem og í búnaði og lögnum. Áhrif rafmagns á mannslíkamann eru oft vanmetin og þekking starfsfólks og annarra á þessum áhrifum er oft lítil. Farið er yfir helstu hættur, hvernig hægt er að forðast hætturnar og hvaða tól og tæki hægt er að nýta til að auka öryggi í kringum rafmagn.
Stórhöfða 27 - 110 Reykjavík - Sími: 540-0160 - rafmennt@rafmennt.is KT: 590104-2050