Öryggispassi Rafmenntar (ÖRYG24PASS)

Lýsing: Öryggispassa RAFMENNTAR er ætlað að vera staðfesting á því að viðkomandi starfsmaður sé öruggur á vinnustað. Viðkomandi geti á einfaldan hátt og á einum stað fengið fræðslu í öllum þeim öryggisþáttum sem starfsmaður í raf- og tæknigreinum þarf að tileinka sér. Á skýran hátt er tekið fram hve langt er síðan passinn var veittur og þannig hvatt til að þekkingu sé viðhaldið.

Þeir þátttakendur sem ljúka öllum námskeiðshlutum verður veitt dagsett skírteini með mynd og persónuupplýsingum til staðfestingar á námi sem viðkomandi getur þá borið á sér á verkstað. Skírteinið mun einnig verða fullgilt vinnustaðaskírteini til aukins hagræðis fyrir þátttakendur og atvinnurekendur þeirra greina sem lög gera ráð fyrir að beri slík skírteini ávallt á sér á verkstað.

Dagskrá:

Dagur 1

  • 8:30 – 12:00     Skyndihjálp                                       
  • 13:00 – 16:30   Brunavarnir                                     

Dagur 2

  • 8:30 – 12:00     Rafmagnsfræðsla     
  • 13:00 – 16:30   Rafmagnsöryggi         

Dagur 3

  • 8:30 – 12:00     Fallvarnir – Vinna í hæð            
  • 13:00 – 16:30   Gestafyrirlestur