Netþjónusta 2 (FJAR16UNIFI)

Lýsing:

 Viðfangsefni áfangans er að skipuleggja uppsetningu og kynnast helstu íhlutum kerfisins. Einnig verður farið yfir forritunarviðmót umsjónaraðila kerfisins. 

Skýjalausnir eru kynntar og hvernig umsjónaraðili getur stýrt og stjórnað kerfinu af netinu.  

Þetta námsskeið er ætlað þeim sem þurfa að þekkja þetta umhverfi til að geta tekið faglegar ákvarðanir samkvæmt stöðlum og reglugerðum varðandi hönnun, uppsetningu breytingum og bilanleit.

Kennt verður á helstu aðgerðir og hugtök í minni netkerfum og fókusinn aðalega á þráðlaus netkerfi (WIFI). Þetta er verkleg kennsla og það verður hannað, sett upp og kennt kerfisumsjón með nýjustu tegund GUI viðmóts WiFi kerfa.

Farið er yfir RF, BW, S/N og Guard Interval og önnur truflana gildi sem þarf að hafa í huga til að hámarka flutnings getu kerfa.

Námskeiðið mun innihalda meðal annars, WLAN skilgreiningar, WLAN hönnun, einföld innsetning búnaðar, grunnaðhæfingu milli búnaðar og kerfishugbúnaðar, kynning á dýpri kerfisumsjón og uppsetningar gesta aðgangs auk „Heitir Reitir“.