Grunnnámskeið Excel: EXCE07Excel1

Lýsing: Grunnnámskeið í Excel þar sem farið er yfir innslátt gagna, forsnið reita, grunnreikniaðgerðir, tilvísanir og afritun, ásamt því að bæta inn línum, dálkum og vinnublöðum. Farið verður yfir ýmis innbyggð föll bæði leitarföll og reikniföll. Einnig verður farið í gerð myndrita, uppsetningu tafla, röðun, síun og textaföll.

Í lok námskeiðs á þátttakandi að geta unnið með töflur, formúlur og myndrit. Þátttakandi á einnig að geta bætt við þekkingu sína með notkun innbyggðrar hjálpar Excel og netsins.

Námskeiðið hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í Excel, en einnig þeim sem hafa fyrst og fremst notað Excel til innsláttar gagna og einfaldra útreikninga og vilja bæta við sig aukinni færni.