Stýringar - iðntölvur II

Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá: MSTY4IT04(BA)

Á námskeiðinu fá nemendur haldgóða framhaldsþekkingu á iðntölvum og búnaði þeim tengdum. Viðfangsefnin eru gerð flæðirita við lausn stýriverkefna og færslu flæðirita í skjámyndir. Þá er fjallað um stöðluð hliðræn merki og forritun þeirra, farið í reikniaðgerðir og forritun í tvíundarorðum til túlkunar á skjámyndum og í gagnagrunna. Flæðirit og forrit eru gerð eftir lýsingum, slegin inn og prófuð í iðntölvum tengdum hermum. Einnig eru gerð flæðirit og forrit þar sem fram koma bæði stafræn og hliðræn merki og þau prófuð í iðntölvum tengdum hermum. Farið er sérstaklega í hugbúnað sem gerir kleift að nota PC tölvu sem eftirlits- og stjórnstöð við iðnstýringar. Þátttakendur gera skjámyndir sem sýna feril vélstýringar á myndrænan hátt og tengja saman iðnstýringu og PC tölvu. Kynntir eru notkunarmöguleikar skráningar í gagnagrunna. 

 

Næstu námskeið