Forritanleg raflagnakerfi I

Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá: MRAK4LH01

Á þessu námskeiði er lögð áhersla á að nemendur kynnist flóknari forritanlegum ljósa- og hússtjórnarkerfum, tilgangi þeirra og möguleikum. Farið er í möguleika forritanlegra raflagnakerfa við stýringu t.d. ljósa, gluggatjalda, hitastigs, loftræstinga, gluggaopnun, vöktun, skráningu og samskipti heimilistækja, síma-, tölvu- og öryggiskerfa. Þá er fjallað um lagnir og forritun þeirra. Nemendur æfa sig í að leggja lagnir og fá þjálfun í að tengja búnað og forrita kerfi, ganga frá þeim og leiðbeina öðrum um notkun þeirra. Þá eru gagnabankar framleiðenda og notkun þeirra kynnt.

 

Forritanleg raflagnakerfi II

Lýsing námskeiðsins samkvæmt námskrá: MRAK4KX01

Á þessu námskeiði er lögð áhersla á að nemendur kynnist flóknari forritanlegum ljósa- og hússtjórnarkerfum, tilgangi þeirra og möguleikum. Farið er í möguleika EIB/KNX kerfisins og hvernig má nota það við stýringu t.d. hitagerla, skjáa, veðurstöðva og ljósasena. Þá er fjallað um lagnir og forritun þeirra. Nemendur æfa sig í að leggja lagnir og fá þjálfun í að tengja búnað og forrita kerfi, ganga frá þeim og leiðbeina öðrum um notkun þeirra. Þá eru gagnabankar framleiðenda og notkun þeirra kynnt. Í þessum áfanga forrita nemendur flóknari kerfi en í þeim fyrri og farið er dýpra í forritun einstakra íhluta forritanlegra kerfa. Að námskeiðinu loknu öðlast þátttakendur Evrópska viðurkenningu fyrir KNX basic.

 

 Næstu námskeið