Umhverfisáætlun framhaldsskóla RAFMENNTAR hefur það markmið að hvetja nemendur og
starfsfólk til að sýna árvekni í umhverfismálum, ganga vel um náttúru, híbýli og nánasta
umhverfi.

Framhaldsskóli RAFMENNTAR leggur áherslu á umræðu og fræðslu í umhverfismálum og
leitast við að flétta þessa þætti inn í daglegt skólastarf með leiðbeiningum varðandi flokkun
sorps og umgengni um húsnæði. Einnig leggur skólinn áherslu á að starfsumhverfi nemenda
og starfsfólks myndi góðar aðstæður fyrir andlega og líkamlega vellíðan.

Leitast skal við að:

    • hámarka nýtingu á orkugjöfum, s.s. á rafmagni og notkun á heitu og köldu vatni
    • nýta sem best öll aðföng er snerta daglegan rekstur, s.s. pappír og aðra rekstrarvörur
    • haga innkaupum þannig að magni umbúða sé haldið í lágmarki og þær endurnýttar þar
      sem því verður við komið
    • velja viðurkenndar umhverfisvænar vörur til viðhalds og reksturs fremur en þær sem
      valda skaða á umhverfinu og kaupa tæki sem nýta orku vel
    • nota umhverfisvæn efni við ræstingu og halda efnamagni í lágmarki
    • endurnýta og endurvinna úrgang sem til fellur í rekstri eftir því sem kostur er og tryggja
      starfsfólki og nemendum greiðan aðgang að sorpílátum og aðstöðu til að flokka sorp til
      endurvinnslu
    • farga spilliefnum á viðeigandi hátt
    • halda notkun á einnota hlutum í lágmarki.