Fimmtudaginn 1. október verður Sölvi Tryggvason með fræðsluerindi um næringu, hreyfingu, leiðir til að bæta svefn, heilastarfsemi og hvernig á að draga úr bólgum og ójafnvægi í líkamskerfinu.

Árið 2019 gaf Sölvi út bókina Á eigin skinni sem fjallar um leið Sölva til að ná heilsu á ný og þær fjölbreyttu tilraunir sem hann gerði á eigin skinni og niðurstöður sem hann komast að. 

Sérstök áhersla verður lögð á hluti sem eru nytsamlegir, eins og að láta heilann vinna með líkamanum, lykilaðferðir í að halda ónæmiskerfinu öflugu og draga úr kvíða og streitu

Kl 12:00 - 13:00

Viðburðinum verður streymt á youtube svæði RAFMENNTAR