Fara beint í efni

Vinnuréttur fyrir vinnuveitendur

AlmennH2026NSTAR06Vinnuré

Fyrirbyggðu ágreining á vinnustað með skýrri framkvæmd starfsmannamála.

Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR

Lýsing

Þessi námskeiðspakki inniheldur þrjú námskeið um vinnurétt og starfsmannamál sem veita þátttakendum heildstæða þekkingu á réttindum og skyldum vinnuveitenda.

Farið er yfir skipulag íslensks vinnumarkaðar, kjarasamninga, ráðningar, ráðningarsamninga, launamál og starfslok. Áhersla er lögð á hagnýta beitingu vinnuréttar, skýra framkvæmd starfsmannamála og leiðir til að fyrirbyggja ágreining á vinnustöðum.

Raunveruleg dæmi eru nýtt til að efla skilning þátttakenda á helstu áskorunum í starfsmannamálum. Námskeiðspakkinn hentar stjórnendum, atvinnurekendum og öðrum sem koma að starfsmanna- og launamálum. Námið fer fram á stafrænu formi og geta þátttakendur farið yfir efnið á eigin hraða.

Kennari

  • Einar Örn Davíðsson

    Einar Örn stundaði laganám við Katholieke Universiteit Leuven í Belgíu og Háskóla Íslands, og útskrifaðist árið 2001 sem Cand. jur. Hann öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2003 og varð löggiltur verðbréfamiðlari árið 2005.

    Einar Örn hefur meðal annars starfað hjá hagsmunasamtökum atvinnurekenda og fjármálastofnunum.

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    15. okt. – 19. des.
    Tími
    Alltaf opið
    Staður
    Á netinu
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð40.000 kr.
RSÍ endurmenntun15.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →