Gagnalæsi
Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
Lýsing
Á námskeiðinu öðlast þátttakendur grunnþekkingu á gagnalæsi og gagnagreiningu og læra hvernig nýta má gögn til að taka upplýstar og markvissar ákvarðanir.
Farið er yfir helstu hugtök gagnalæsis, hvernig gögnum er breytt í gagnlegar upplýsingar og hvernig gagnagreining getur stutt við ákvarðanatöku. Einnig er fjallað um þróun gagnanotkunar og mikilvægi hennar fyrir árangur og samkeppnishæfni fyrirtækja og stofnana.
Námskeiðið hentar öllum sem vilja efla skilning sinn á gögnum, bæta ákvarðanatöku og öðlast betri forsendur til að nýta upplýsingar í starfi og daglegu lífi. Námið fer fram á stafrænu formi og geta þátttakendur farið yfir efnið á eigin hraða.
Nánari lýsing
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái góðan skilning á því hvað gagnalæsi er og hvers vegna gagnalæsi og gagnagreiningar eru forsenda góðra ákvarðana. Við undirbúning ákvarðanatöku er gott að geta lesið í aðstæður og það er mikilvægt að geta lesið gögnin sem styrkja ákvörðunina.
Um námskeiðið
Gögn ein og sér eru ekki til mikils. Það er ekki fyrr en við höfum breytt þeim í upplýsingar sem við getum notað þau til að taka betri ákvarðanir. Það er kjarni gagnalæsis, að kunna að raða saman ólíkum breytum til að fá vísbendingar og röksemdir sem styðja, styrkja eða hrekja forsendur fyrir ákvörðunum okkar.
Á námskeiðinu er farið yfir það hvernig hraði þróunar hefur verið og hverju megi eiga von á. Farið er yfir breytingar á ákvarðanatöku og hvernig gagnalæsi og gagnagreiningar eru forsendur fyrir góðri ákvarðanatöku og samkeppnisyfirburðum.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið er fyrir alla sem vilja fara yfir grunnatriðin í gagnalæsi. Fyrir þá sem vilja fara yfir góðar skilgreiningar og fá góðan grunnskilning á gagnalæsi og gagnagreiningu.
Skipulagið
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma og hraða sem hentar þeim.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.
Kennari
- Dr. Páll Ríkharðsson
Páll lauk doktorsprófi í viðskiptafræði árið 1997 frá Háskólanum í Árósum og starfaði sem manager og senior manager hjá PricewaterhouseCoopers í Kaupmannahöfn á árunum 1994 til 2000. Þá tók hann við stöðu dósents í reikningshaldi og upplýsingatækni við Háskólann í Árósum þangað til 2007. Frá 2007 til 2013 starfaði Páll sem ráðgjafi hjá fyrirtækjunum SAS Institute, PwC og Herbert Nathan & Co í Kaupmannahöfn. Frá 2012 tók Páll við fullri stöðu dósents við Háskóla Reykjavíkur og varð prófessor og deildarforseti 2016 en gegnir nú stöðu framkvæmdastjóra Planet Youth. Páll hefur birt fjölda bóka og greina um m.a. upplýsingastjórnun, viðskiptagreind, stjórnunarreikningsskil og innra eftirlit.
Hópar og dagsetningar
Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.
Hópur 1
- Dagsetning
- 15. okt. – 19. des.
- Tími
- Alltaf opið
- Staður
- Á netinu
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 21.200 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 7.500 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


