Fjármálalæsi - Fjármál heimilisins
Náðu sterkum tökum á fjármálum heimilsins
Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR
Lýsing
Á námskeiðinu öðlast þátttakendur grunnþekkingu á fjármálum heimilisins og læra að taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál. Farið er yfir heimilisbókhald, tekjur og gjöld, launaseðla, skatta, lífeyrissjóði, tryggingar og áhrif verðbólgu.
Sérfræðingar úr fjármálageiranum og öðrum stofnunum útskýra lykilhugtök og miðla hagnýtri þekkingu með verkefnum og æfingum sem efla skilning þátttakenda á fjármálum heimilisins.
Námskeiðið hentar öllum sem vilja bæta fjármálalæsi sitt, ná betri yfirsýn yfir eigin fjárhag og öðlast aukið öryggi í fjármálalegum ákvörðunum. Námið fer fram á stafrænu formi og geta þátttakendur farið yfir efnið á eigin hraða.
Nánari lýsing
Fjármálalæsi stuðlar að bættri ákvarðanatöku í fjármálum með áherslu á sparnað og fyrirhyggju. Þetta námskeið snýst um að þátttakendur öðlist yfirsýn yfir tekjur og gjöld til að auðvelda þeim að ná markmiðum sínum og uppfylla drauma.
Um námskeiðið
Á þessu stafræna námskeiði um fjármál heimilsins er unnið með viðfangsefni sem hafa áhrif á heimilisbókhaldið út frá áhuga og þörfum hvers og eins.
Á námskeiðinu segja sérfræðingar frá og útskýra:
Heimilisbókhald
Launaseðil og skatta
Skatthlutfall og skattstofn
Lífeyrissjóði
Tryggingar
Verðbólgu
Í hverjum kafla námskeiðsins segja sérfræðingar frá þeim lykilatriðum sem þarft er að kunna. Verkefni og æfingar tengdar hverju atriði eru síðan lagðar fyrir til að tryggja skilning á viðfangsefninu.
Sérfræðingar á námskeiðinu koma frá lífeyrissjóðum, stéttarfélögum og Umboðsmanni skuldara. Þeir miðla af þekkingu sinni á tryggingum, verðbólgu og verðtryggingu.
Fyrir hverja er námskeiðið
Opni háskólinn í HR og Fjármálavit unnu saman að gerð námskeiðsins sem er öllum opið. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur auki fjármálalæsi sitt og geti þannig tekið upplýstari ákvarðanir í fjármálum, með áherslu á sparnað og fyrirhyggju.
Námskeiðið er eitt af þremur um Fjármálalæsi, en þau eru:
Fjármál heimilisins
Sparnaður og fjárfestingar
Lán og lánshæfi
Námskeiðin eru fyrir þau sem vilja auka skilning sinn á þessum viðfangsefnum. Þeim er ætlað að byggja upp þekkingu þátttakenda á þeim viðfangsefnum sem þeir þurfa helst að styrkja þekkingu sína í.
Hægt er að kaupa hvert námskeið stakt eða kaupa þau saman í braut.
Skipulagið
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.
Það er Kristján Arnarsson sem tekur á móti þátttakendum, segir frá skipulaginu og leiðir inn sérfræðingana sem segja frá og auka skilning okkar á ólíkum liðum í fjármálum heimila.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Athugaðu hvort þú átt rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið hjá þínu stéttarfélagi.
Félagsmenn Rafiðnaðarsambandsins sem greiða í endurmenntunarsjóð fá námskeiðsgjöld á lægsta verði.
Fleiri námskeið í fjármálalæsi eru í boði: Sparnaður og fjárfestingar, Lán og lánshæfi, og svo er hægt að taka þau öll saman á hagstæðara verði.
Tengd námskeið
Þetta námskeið er eitt af þremur um fjármálalæsi:
Eða taktu öll þrjú saman á hagstæðara verði.
Hópar og dagsetningar
Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.
Hópur 1
- Dagsetning
- 15. okt. – 19. des.
- Tími
- Alltaf opið
- Staður
- Á netinu
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Hópur 1
- Dagsetning
- 1. jan. – 25. júní 2027
- Tími
- Alltaf opið
- Staður
- Á netinu
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 15.900 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 5.570 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


