Fara beint í efni

Fjármálalæsi - Allur Pakkinn

AlmennH2026NFJLÆ12FJAP

Þrjú hnitmiðuð námskeið sem auka fjármálalæsi þitt í einum pakka

Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR

Lýsing

Þessi námskeiðspakki inniheldur öll þrjú námskeiðin um fjármálalæsi á hagstæðara verði. Þátttakendur öðlast heildstæða grunnþekkingu á fjármálum heimila og einstaklinga og læra að taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál.

Farið er yfir heimilisbókhald, tekjur og gjöld, skatta, lífeyrissjóði, tryggingar, sparnað, fjárfestingar, lán og lánshæfi.

Sérfræðingar úr fjármálageiranum og öðrum stofnunum útskýra lykilhugtök og miðla hagnýtri þekkingu með verkefnum og æfingum.

Námskeiðspakkinn hentar öllum sem vilja bæta fjármálalæsi sitt, öðlast betri yfirsýn yfir eigin fjárhag og styrkja fjárhagslega ákvarðanatöku. Námið fer fram á stafrænu formi og geta þátttakendur farið yfir efnið á eigin hraða.

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    15. okt. – 19. des.
    Tími
    Alltaf opið
    Staður
    Á netinu
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð32.000 kr.
RSÍ endurmenntun11.200 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →