Fara beint í efni

CONE - Hönnun og rekstur ljósleiðarakerfa

AlmennV2027NFJSV40CONE

Náðu tökum á að móta hönnunarstefnu og langtímaáætlanir fyrir ljósleiðaranet.

Námskeið í samstarfi við OTT - Optical Technology Training

Lýsing

Viltu efla þekkingu þína á hönnun og rekstri háhraða ljósleiðaraneta?

CONE (Certified Optical Network Engineer) er framhaldsnámskeið sem byggir á CONA og veitir sérhæfða þekkingu á ljósleiðaranetum sem nýta samfasa sendingu og stafræna merkjavinnslu (DSP).

Farið verður yfir hönnun og bestun háhraðakerfa, DWDM, ROADM, SDN og lausnir fyrir gagnahraða frá 100Gb/s og upp úr. Þú lærir að meta tæknilegar lausnir, hámarka afköst, drægni og hagkvæmni ásamt því að taka upplýstar ákvarðanir um uppbyggingu og framtíðarþróun ljósleiðaraneta.

Námskeiðið byggir á raunhæfum verkefnum og undirbýr þátttakendur fyrir alþjóðlega CONE-vottun. Kennsla fer fram á ensku.

Kennari

  • Michal Pěček

    Michal er ráðgjafi í ljósleiðaratækni með yfir 25 ára reynslu af hönnun, uppbyggingu og rekstri ljósleiðaraneta. Hann hefur hannað ljósleiðaranet fyrir stór fjarskiptafyrirtæki á borð við Verizon, Deutsche Telekom og Telefónica, og starfaði hjá Google í 11 ár við hönnun og sjálfvirknivæðingu alþjóðlegs ljósleiðaranets fyrirtækisins.

    Michal er löggiltur til að kenna bæði CONA (Certified Optical Network Associate) og CONE (Certified Optical Network Engineer) námskeið OTT í Evrópu. Námskeiðin eru ætluð netkerfishönnuðum, verkefnastjórum, hugbúnaðarþróunaraðilum og öðru fagfólki sem starfar við ljósleiðaraflutningskerfi.

    Nánari upplýsingar má finna hér.

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    18.–22. janúar 2027 · Mánnudagur til föstudags
    Tími
    kl. 08:30–16:30
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð545.500 kr.
RSÍ endurmenntun225.000 kr.
SART448.500 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →