CONA - Hönnun og rekstur ljósleiðarakerfa
Æfðu þig í að hanna ljósleiðarakerfi með skilvirkan og hagkvæman rekstur í huga.
Námskeið í samstarfi við OTT - Optical Technology Training
Lýsing
Viltu öðlast traustan grunn í uppbyggingu, hönnun og rekstri ljósleiðaraneta?
CONA (Certified Optical Network Associate) er hagnýtt námskeið sem veitir víðtæka þekkingu á nútíma ljósleiðarakerfum og nýtingu þeirra í fjarskiptum og gagnaverum.
Farið verður yfir eiginleika ljósleiðara, mismunandi flutningstækni, WDM, ljósleiðaramagnara og háhraðasambönd. Þú lærir að meta tæknilegar lausnir, greina þætti sem hafa áhrif á afköst og hanna skilvirk og hagkvæm ljósleiðaranet.
Með verklegum hönnunaræfingum öðlast þú færni sem nýtist við uppbyggingu og rekstur ljósleiðarakerfa.
Námskeiðið er kennt á ensku, lýkur með CONA-vottun og veitir grunn fyrir framhaldsnám í CONE.
Nánari lýsing
Skráning opin til 15. desember og þá munu þátttakendur þá fá send kennslugögn.
Á þessu námskeiði er farið yfir ljósleiðarakerfi og fjallað um netinnviði, uppbyggingu, hönnun og rekstur slíkra kerfa ásamt samþættingu við önnur netkerfi.
Greiningartækni er kynnt til að ná hámarksafköstum allt að 1.6Tb/s. Farið er yfir Ethernet-rásir innan gagnavera, 100Gb/s og 400Gb/s sambönd, FTTA(Fiber-to-the-antenna) við 5G dreifingu, FTTH (Fiber-to-the-home) í point-to-point og önnur ljósleiðarasambönd yfir mismunandi flutnings- og veitukerfi.
Kynntir eru eiginleikar ljósleiðarans og farið yfir atriði sem geta haft áhrif á frammistöðu hans í flutningi gagna. Mismunandi gerðir ljósleiðara eru kynntar, deyfing, dreifing ljóss og skautun. Einnig verður farið yfir hvernig hægt er að margfalda afkastagetu bylgjulengdarkerfa með notkun WDM tækni ásamt því farið er yfir SDM tækni. Auka drægni kerfanna með mögnurum (EDFA, Raman, SOA) og stjórnun ljósdreifingar.
Á námskeiðinu er notað kennslukerfi þar sem þátttakendur gera hönnunaræfingar og kynnast uppbyggingu á ljósleiðarakerfum til auka skilvirkni og hagkvæmni við rekstur.
Kennt verður frá mánudegi til föstudags frá 8:30 - 16:30. Námskeiðið er í heild 5 dagar.
Námskeiðið hentar þeim sem vilja hafa viðtækan grunn af virkni, uppbyggingu og reksturs ljósleiðarakerfa. Nemendur útskrifast með CONA gráðu - Certified Optical Network Associate og gefur rétt til að sækja framhaldsnámskeið CONE – Certified Optical Network Engineer.
Þátttakendur þurfa að koma með fartölvur á námskeiðið.
Gert er ráð fyrir að nemendur hafi góðan grunn að rekstri netkerfa, þó slíkt sé ekki nauðsynlegt.
Námskeið er kennt á ensku.
Í námskeiðsgjöldum er innifalin hádegismatur og hressing.
Lýsing á námskeiðinu frá OTT má nálgast hér
Nánari upplýsingar má finna hér
Aðrar upplýsingar
Dagskrá
Fimm dagar, 08:30 – 16:30 hvern dag.
Mánudagurinn 11. janúar 08:30 – 16:30 |
Þriðjudagurinn 12. janúar 08:30 – 16:30 |
Miðvikudagurinn 13. janúar 08:30 – 16:30 |
Fimmtudagurinn 14. janúar 08:30 – 16:30 |
Föstudagurinn 15. janúar 08:30 – 16:30 |
CONA + CONE
CONA er grunnnámskeið sem kennir undirstöðuatriði ljósleiðaraneta sem byggja á beinni greiningu (direct detection) — meðal annars metro-net, gagnaversamtengingar og langlínukerfi. Ekkert forkröfuþekking er nauðsynleg.
CONE byggir ofan á CONA og fer dýpra í hönnun neta sem nýta samfasa sendingu og stafræna merkjavinnslu (DSP) fyrir mun hraðari gagnaflutning (100Gb/s og upp úr).
Saman gefa CONA og CONE heildarmynd af nútíma ljósleiðaranetum — frá grunnþekkingu upp í fullþróaða, samfasa háhraðakerfi.
Kennari
- Michal Pěček
Michal er ráðgjafi í ljósleiðaratækni með yfir 25 ára reynslu af hönnun, uppbyggingu og rekstri ljósleiðaraneta. Hann hefur hannað ljósleiðaranet fyrir stór fjarskiptafyrirtæki á borð við Verizon, Deutsche Telekom og Telefónica, og starfaði hjá Google í 11 ár við hönnun og sjálfvirknivæðingu alþjóðlegs ljósleiðaranets fyrirtækisins.
Michal er löggiltur til að kenna bæði CONA (Certified Optical Network Associate) og CONE (Certified Optical Network Engineer) námskeið OTT í Evrópu. Námskeiðin eru ætluð netkerfishönnuðum, verkefnastjórum, hugbúnaðarþróunaraðilum og öðru fagfólki sem starfar við ljósleiðaraflutningskerfi.
Nánari upplýsingar má finna hér.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 11.–15. janúar 2027 · Mánudagur - föstudags
- Tími
- kl. 08:30–16:30
- Staður
- Stórhöfði 27
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 470.000 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 198.000 kr. |
| SART | 370.000 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


