Fara beint í efni

Að taka starfsmannasamtal

AlmennH2026NSTAR02Starsam I

Náðu tökum á að skipuleggja starfsmannasamtöl með skýrum væntingum.

Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR

Lýsing

Þetta hagnýta námskeið undirbýr stjórnendur fyrir að leiða starfsmannasamtöl á faglegan, uppbyggilegan og markvissan hátt.

Farið er yfir tilgang og uppbyggingu starfsmannasamtala, undirbúning stjórnandans, samtalstækni, virka hlustun, endurgjöf, markmið og eftirfylgni. Áhersla er lögð á að samtölin skili skýrum væntingum, betri samskiptum og raunhæfum næstu skrefum.

Námskeiðið hentar stjórnendum með mannaforráð, hvort sem þeir eru nýir í stjórnunarhlutverki eða vilja efla færni sína í starfsmannasamtölum.

Námskeiðið er á stafrænu formi í kennslukerfi Opna háskólans og þátttakendur geta farið yfir efnið á eigin hraða.

Kennari

  • Dr. Þóra Þorgeirsdóttir

    Lektor við Háskólann í Reykjavík

    Þóra er með doktorspróf í mannauðsstjórnun frá Cranfield háskóla í Bretlandi, hefur starfað sem stjórnandi til margra ára og hefur sérstaka ástríðu fyrir öllu sem snýr að velferð, vexti og vellíðan fólks í víðu samhengi.

    Þóra hefur í mörg ár rannsakað og kennt stjórnun, vinnusálfræði, vellíðan í vinnu og samskipti á vinnustöðum og haldið fjölmörg námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir um andlega heilsu og líðan á vinnustað.

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Dagsetningar eru sveigjanlegar: þú byrjar þegar þér hentar innan tímabilsins.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    15. okt. – 19. des.
    Tími
    Alltaf opið
    Staður
    Á netinu
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð15.900 kr.
RSÍ endurmenntun5.600 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →