Fara beint í efni

Að fara í starfsmannasamtal

AlmennH2026NSTARSTAR02Starsam II

Nýttu starfsmannasamtalið til að skýra væntingar og móta næstu skref í starfi.

Námskeið í samstarfi við Opna Háskólann í HR

Lýsing

Þetta hagnýta námskeið undirbýr þig fyrir starfsmannasamtal og hjálpar þér að nýta það til að hafa áhrif á eigið starf, samskipti og starfsþróun.

Farið er yfir tilgang og uppbyggingu starfsmannasamtala, undirbúning, samtalstækni, endurgjöf, markmið og eftirfylgni. Einnig er fjallað um hvernig ræða megi álag, streitu og stuðning í starfi á uppbyggilegan hátt.

Námskeiðið hentar öllu starfsfólki sem vill taka virkan þátt í starfsmannasamtali og stuðla að skýrum væntingum og markvissum umbótum.

Námskeiðið er á stafrænu formi í kennslukerfi Opna háskólans í HR og þátttakendur geta farið yfir efnið á eigin hraða.

Kennari

  • Dr. Þóra Þorgeirsdóttir

    Lektor við Háskólann í Reykjavík

    Þóra er með doktorspróf í mannauðsstjórnun frá Cranfield háskóla í Bretlandi, hefur starfað sem stjórnandi til margra ára og hefur sérstaka ástríðu fyrir öllu sem snýr að velferð, vexti og vellíðan fólks í víðu samhengi.

    Þóra hefur í mörg ár rannsakað og kennt stjórnun, vinnusálfræði, vellíðan í vinnu og samskipti á vinnustöðum og haldið fjölmörg námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir um andlega heilsu og líðan á vinnustað.

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    15. okt. – 19. des.
    Tími
    Alltaf opið
    Staður
    Á netinu
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð15.900 kr.
RSÍ endurmenntun5.600 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →