Iðnnám og atvinnulíf – iðnnám á krossgötum?
Nemastofa atvinnulífsins býður til morgunfundar um stöðu og framtíð iðnnáms. Fjallað verður um tölfræði, viðhorf iðnmeistara og samspil skóla- og vinnustaðanáms.
Nemastofa atvinnulífsins heldur morgunfund miðvikudaginn 25. nóvember kl. 8:30 til 10:00 að Stórhöfða 27. Morgunhressing verður í boði frá kl. 8.
Á fundinum verður rætt hvernig iðnnám stendur gagnvart þörfum atvinnulífs og samfélags, hvar tækifærin liggja og hvað þarf að bæta.
Dagskrá
Vilborg Helga Harðardóttir, formaður stjórnar Nemastofu atvinnulífsins
Iðn- og tæknimenntun – uppbyggingarþörf samfélagsins: Hulda Birna Baldursdóttir, SI
Tölfræði iðnnáms og niðurstöður könnunar á viðhorfum iðnmeistara til ferilbóka og vinnustaðanáms: Ólafur Jónsson, Nemastofu
Um skipulag skóla- og vinnustaðanáms í iðnnámi: Helgi Rafnsson, Rafholt
Pallborð
Staða iðngreina, samspil skóla- og vinnustaðanáms, áskoranir og tækifæri.
Guðni Einarsson, formaður meistarafélags rafeindavirkja
Halldór Gunnarsson, rafvirkja- og rafeindavirkjameistari
Jón Sigurðsson, formaður meistarafélags húsasmiða
Gauti Fannar Gestsson, blikksmíðameistari
Fundinum lýkur með samantekt og tillögum.
Skráning
Fundurinn er öllum opinn. Vinsamlegast skráðu þig á skráningarsíðunni.


