Sveinspróf í rafvirkjun
Ekki er opið fyrir skráningu
Sveinspróf í rafvirkjun eru haldin í febrúar (viku 6) og júní (viku 23) í Reykjavík og á Akureyri ef næg þátttaka fæst.
Ferlið í stuttu máli
- Ljúktu vinnustaðanámi
Samkvæmt rafrænni ferilbók eða námssamningi. Því þarf að vera lokið áður en sveinsprófið hefst.
- Sæktu um innan umsóknarfrests
1.–30. nóvember fyrir febrúar og 1.–31. mars fyrir júní. Gátlistinn á umsóknarsíðunni sýnir hvaða gögn þurfa að fylgja.
- Kynningarfundur
Sveinsprófsnefnd kynnir prófin fyrir próftökum hjá Rafmennt og á Teams.
- Prófin
Skriflegur hluti og verklegur hluti eftir dagskrá.
- Prófsýning og sveinsbréf
Mennta- og barnamálaráðuneytið gefur út sveinsbréfin og þau eru afhent við athöfn.
Umsóknarfrestur
Sveinspróf | Umsóknarfrestur |
|---|---|
Febrúar | 1.–30. nóvember |
Júní | 1.–31. mars |
Um prófið
Sveinspróf í rafvirkjun skiptist í verklegan hluta og skriflegan hluta.
Verklegur hluti: raflagnir og stýringar (básinn) og mælingar.
Skriflegur hluti: íslenskur staðall, rafmagnsfræði og raflagnateikning.
Reglugerðir og leiðbeiningar
Umsjón
- Guðmundur S. JónssonUmsjón með sveinsprófum í rafiðngreinumgudmundurs@rafmennt.is540 0160


