Endurmenntun Rafiðna fagnar 50 ára afmæli með opnu húsi og afmælishátíð laugardaginn 14. febrúar kl. 11:00–15:00.

Gestum gefst tækifæri til að kynna sér fjölbreytta starfsemi Rafmenntar, námskeið í endurmenntun innan rafiðnaðar og tækni, auk þess að fá innsýn í nám og starfsemi Kvikmyndaskólans.

Boðið verður upp á léttar veitingar og notalega stemningu í tilefni dagsins.

Allir eru hjartanlega velkomnir að fagna þessum tímamótum með okkur!