Fara beint í efni

Tilboðsgerð í opinberum útboðum

Almenn · TæknifólkH2026NALMN06TILB

Námskeið sem veitir hagnýta innsýn í opinbert útboðsferli frá auglýsingu til samningsgerðar

Lýsing

Námskeiðið veitir hagnýta innsýn í opinbert útboðsferli frá auglýsingu til samningsgerðar, með áherslu á lestur og skilning útboðsgagna, hæfiskröfur og mismunandi matsforsendur.

Þátttakendur læra að greina lágmarkskröfur, forðast algeng mistök í tilboðsgerð og gagnaskilum, móta markvissar fyrirspurnir og bregðast við óskýrleika í skilmálum. Námskeiðið hentar þeim sem koma að gerð tilboða í útboðum og vilja auka líkur á gildum og samkeppnishæfum tilboðum.

Kennari

  • Ólafur Steingrímsson

    Kennari námskeiðsins er Starfandi skrifstofustjóri hjá innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar (nú Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar). Ólafur hefur 12 ára reynslu af opinberum innkaupum og þar áður reynslu sem innkaupastjóri á einkamarkaðnum. Ólafur hefur starfað sem ráðgjafi á sviði útboðsmála og sérhæfir sig í rýni útboðsgagna og gerð matslíkana.

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 2

    Dagsetning
    20. október
    Tími
    kl. 09:00–14:00
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð31.200 kr.
RSÍ endurmenntun10.920 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →