Fara beint í efni

Öryggis- og aðgangsstýrikerfi

MeistaraskóliH2026MMÖRY4AS02BA

Kjarnanámskeið í Meistaraskóla rafvirkja/Meistaraskóla rafeindavirkja

Öryggis- og aðgangsstýrikerfi (MÖRY4AS02) - 2 einingar

Viðfangsefni námskeiðsins er uppbygging, forsendur og hönnun sambyggðra öryggis- og aðgangskerfa.

Nemendur fá yfirsýn yfir uppbyggingu innbrotsviðvörunarkerfa og forsendur sem liggja að baki stjórnun og vöktun hurða. Einnig er farið í öryggisstig við vöktun hurða og frágang búnaðar við hurðir.

Þá eru mismunandi gerðir aðgangskerfa kynntar, farið í val á aðgangskortum, skilríkjum, lestrartækni og raflyklum og þá möguleika sem slíkur búnaður býður upp á. Þátttakendur fá innsýn í og skilning á helstu kerfum, tengingum, virkni og almennum viðmiðunum um öryggis- og aðgangskerfi hér á landi.

Námskeiðið er fyrir rafiðnaðarmenn sem starfa við uppsetningar og viðhaldsstörf tengdum aðgangs og öryggiskerfum. Einnig er námið góður grunnur fyrir þá sem sinna öryggisráðgjöf og sölustörfum.

Kennslan fer fram bæði í stað- og fjarkennslu.
Nemendur geta valið hvort þeir mæta í kennslustundir á Stórhöfða eða taka þátt í fjarkennslu í gegnum Teams.

Athugið: Þátttakendur námskeiða sem að nota Teams fjarfundarbúnað þurfa að vera í mynd til þess að fá viðurkenningu að þeim loknum.

Kennari

  • Þórir Helgi Helgason

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 2

    Dagsetning
    20.–21. nóvember · Föstudag, Laugardag
    Tími
    kl. 08:30–16:30
    Staður
    Stórhöfði 27, Teams
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð48.400 kr.
RSÍ endurmenntun16.940 kr.
SART41.140 kr.
Er í meistaraskóla9.680 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →