Fara beint í efni

CONA - Hönnun og rekstur ljósleiðarakerfa

AlmennV2027NFJSV40CONA

Námskeið í samstarfi við OTT - Optical Technology Training


Skráning opin til 27. apríl og þá munu þátttakendur þá fá send kennslugögn.

Á þessu námskeiði er farið yfir ljósleiðarakerfi og fjallað um netinnviði, uppbyggingu, hönnun og rekstur slíkra kerfa ásamt samþættingu við önnur netkerfi.

Greiningartækni er kynnt til að ná hámarksafköstum allt að 1.6Tb/s. Farið er yfir Ethernet-rásir innan gagnavera, 100Gb/s og 400Gb/s sambönd, FTTA(Fiber-to-the-antenna) við 5G dreifingu, FTTH (Fiber-to-the-home) í point-to-point og önnur ljósleiðarasambönd yfir mismunandi flutnings- og veitukerfi.

Kynntir eru eiginleikar ljósleiðarans og farið yfir atriði sem geta haft áhrif á frammistöðu hans í flutningi gagna. Mismunandi gerðir ljósleiðara eru kynntar, deyfing, dreifing ljóss og skautun. Einnig verður farið yfir hvernig hægt er að margfalda afkastagetu bylgjulengdarkerfa með notkun WDM tækni ásamt því farið er yfir SDM tækni. Auka drægni kerfanna með mögnurum (EDFA, Raman, SOA) og stjórnun ljósdreifingar.

Á námskeiðinu er notað kennslukerfi þar sem þátttakendur gera hönnunaræfingar og kynnast uppbyggingu á ljósleiðarakerfum til auka skilvirkni og hagkvæmni við rekstur.

Kennt verður frá mánudegi til föstudags frá 8:30 - 16:30. Námskeiðið er í heild 5 dagar.

Námskeiðið hentar þeim sem vilja hafa viðtækan grunn af virkni, uppbyggingu og reksturs ljósleiðarakerfa. Nemendur útskrifast með CONA gráðu - Certified Optical Network Associate og gefur rétt til að sækja framhaldsnámskeið CONE – Certified Optical Network Engineer.

Þátttakendur þurfa að koma með fartölvur á námskeiðið.

Gert er ráð fyrir að nemendur hafi góðan grunn að rekstri netkerfa, þó slíkt sé ekki nauðsynlegt.

Námskeið er kennt á ensku.

Í námskeiðsgjöldum er innifalin hádegismatur og hressing.

Lýsing á námskeiðinu frá OTT má nálgast hér

Nánari upplýsingar má finna hér

Kennari er Michal Pěček, sem hefur starfað síðastliðin ár hjá Google í Evrópu við hönnun og sjálfvirknivæðingu á ljósleiðarakerfum Google og gagnverum þeirra. Þar á undan sá hann um hönnun á samskonar kerfum fyrir Verizon, Deutche Telekom og Telefónica.

Ekki er hægt að nota gjafabréf á þessu námskeiði.

Hópar og dagsetningar

Einn hópur er í boði á önninni.

  1. Hópur 1

    Dagsetning
    11.–15. janúar 2027 · Mánudagur - föstudags
    Tími
    kl. 08:30–16:30
    Staður
    Stórhöfði 27
    Verð
    Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.

Verðskrá

Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.

Fullt verð470.000 kr.
RSÍ endurmenntun198.000 kr.
SART370.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

Afbókun
Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
Staðsetning
Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
Spurningar?
Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →