Neyðarlýsingar
Lærðu hvaða lög og reglugerðir gilda um uppsetningu og viðhald neyðarlýsingar.
Lýsing
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur þekki lög og reglugerðir fyrir neyðarlýsingu þegar kemur að uppsetningu, úttekt og viðhaldi á neyðarlýsingarkerfum.
Athugið að þátttakendur námskeiða sem að nota Teams fjarfundarbúnað þurfa að vera í mynd til þess að fá viðurkenningu að þeim loknum.
Nánari lýsing
Fyrir hverja
Námskeiðið er fyrir alla sem ætla sér að sækja um starfsleyfi frá Húsnæðis og mannvirkjastofnun vegna starfa við uppsetningu, úttektir og viðhald neyðarlýsinga.
Athugið að þátttakendur námskeiða sem að nota Teams fjarfundarbúnað þurfa að vera í mynd til þess að fá viðurkenningu að þeim loknum.
Kennari
- Guðjón Leifur Sigurðsson
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 1
- Dagsetning
- 3. desember · Föstudagur
- Tími
- kl. 08:30–12:30
- Staður
- Stórhöfða 27, Teams
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 19.400 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 6.790 kr. |
| SART | 16.490 kr. |
| Meistaraskóli | 3.880 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


