Nýtt líf eftir starfslok – Starfslokanámskeið
Námskeiðið er opið öllum sem nálgast starfslok
Námskeiðið er hannað til að aðstoða fólk við að undirbúa sig og
njóta þeirra breytinga sem verða eftir að það lýkur störfum.
Á þessu námskeiði verður fjallað um allar helstu breytingar sem hafa þarf í huga
við starfslok á gagnlegan og skýran hátt:
Lífeyrismál
Réttindi og skerðingar hjá Tryggingastofnun Ríkisins
Eignastýringu og séreignasparnað
Húsnæðismál
Endurskipulagningu fjármála
Erfðamál og hjúskaparstöðu
Áhrif hreyfingar og næringar á heilsufar
Tómstundir, félagslíf og áhugamál
Dvöl/búseta í útlöndum
Markmiðasetningu til að tryggja árangur
Kennsludagar eru þriðjudagur og fimmtudagur.
Umsjónarmaður námskeiðsins er:
Magnea Einarsdóttir - Fyrrum skólastjóri á eftirlaunum.
Hópar og dagsetningar
Einn hópur er í boði á önninni.
Hópur 2
- Dagsetning
- 3.–5. nóvember · þriðjudagur og fimmtudagur
- Tími
- kl. 09:00–12:30
- Staður
- Stórhöfða 27
- Verð
- Sjá verðskráRSÍ endurmenntunarverð birtist í umsókninni; tilheyrir þú öðrum verðflokki er verðinu breytt þar.
Verðskrá
Í umsóknarferlinu birtist RSÍ endurmenntunarverð. Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú tilheyrir öðrum verðflokki og verðinu er breytt handvirkt í innrituninni.
| Fullt verð | 47.610 kr. |
|---|---|
| RSÍ endurmenntun | 16.663 kr. |
Hagnýtar upplýsingar
- Afbókun
- Ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið þarf að tilkynna það skriflega í tölvupósti á rafmennt@rafmennt.is a.m.k. 48 klst. áður en námskeið hefst. Rafmennt áskilur sér rétt til að innheimta 3.000 kr. umsýslugjald.
- Staðsetning
- Námskeið Rafmenntar fara fram að Stórhöfða 27, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram við hópinn.
- Spurningar?
- Hringdu í síma 540 0160 eða sendu póst á rafmennt@rafmennt.is.
Opið Mán–Fös 8:00–12:00 & 13:00–16:00.
Hafa samband →


